Fundur fólksins 2023: Húsnæðisstefna í þágu allra – hvernig tryggjum við jafnari tækifæri?

16.09.23 | Viðburður
alt=""
Photographer
Gettyimages
Hvernig gengur ríkisstjórn og sveitarfélögum að uppfylla eigin markmið um húsnæði á viðráðanlegu verði? Hvaða úrræði eru í boði og hvaða árangri skila þau? Þarf að endurhugsa kerfið til svo að tryggja megi jöfnuð?

Upplýsingar

Dates
16.09.2023
Time
12:00 - 12:40
Location

Fundur fólksins
Norræna húsið
Reykjavík
Ísland

Type
Umræðufundur

Í takt við sífellt aðþrengdari húsnæðismarkað hefur framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði orðið að lykiláherslu í húsnæðisstefnum Norðurlandanna. Í opinberri stefnumótun er kveðið á um að útvega eigi nýtt húsnæði í mismunandi verð- og leiguflokkum með það að markmiði að ná til breiðari hluta íbúa, auk þess sem stuðla eigi að félagslega blönduðum hverfum. En á sama tíma virðist staða milli- og lágtekjuhópa á húsnæðismarkaði fara versnandi, bæði hérlendis og hjá norrænu nágrönnum okkar. Þá er jafnvel talað um hina „aðþrengdu miðju“ á húsnæðismarkaði, þar sem millistéttin hefur nú orðið hvorki efni á húsnæðisfjárfestingum né á rétt á opinberum stuðningi.

Hér munum við heyra erindi um niðurstöður rannsóknarverkefnisins „Strategic housing,“ sem rýnir í húsnæðisstefnur á Norðurlöndunum með það að markmiði að hvetja borgir til þess að þróa yfirgripsmeiri og heildstæðari húsnæðisstefnur. Anna Granath Hansson, sérfræðingur hjá Nordregio, flytur erindið, og að því loknu mun pallborð skipað sérfræðingum, fulltrúum úr borgarasamfélaginu og fulltrúum hins opinbera setja niðurstöðurnar í íslenskt samhengi. Í umræðunum munum við ekki einungis velta fyrir okkur jöfnuð hvað viðkemur framboði, heldur einnig hvað varðar gæði þess húsnæðis sem stendur til boða.

Þátttakendur:

  • Anna Granath Hansson, doktor í fasteigna- og byggingarstjórnun og sérfræðingur við Nordregio
  • Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna
  • Hildur Gunnarsdóttir, skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar

Fundarstjóri:

  • Anna María Bogadóttir, arkitekt, eigandi Úrbanistan og dósent við Listaháskóla Íslands.