Fundur fólksins 2023: Samfélagsvitund og lýðræði – hvernig eflum við þátttöku ungmenna í félagsstarfi?

15.09.23 | Viðburður
alt=""
Photographer
Nordland fylkeskommune
Þáttaka í frístundastarfi og klúbbum getur eflt sjálfstraust ungs fólks og fyrirbyggt vanlíðan. Þrátt fyrir það standa Norðurlöndin frammi fyrir þverrandi þátttöku ungmenna í félagslegu starfi. Hvaða hindranir þarf að yfirstíga til þess að spyrna gegn þessari þróun?

Upplýsingar

Dates
15.09.2023
Time
10:00 - 10:40
Location

Fundur fólksins
Norræna húsið
Reykjavík
Ísland

Type
Umræðufundur

Ísland og Norðurlöndin eru þekkt fyrir öflugt og jákvætt frístundastarf, og ungmenni hafa kost á að ganga í fjöldan allan af félögum og klúbbum. Slík félög eru oftar en ekki staður þar sem ungt fólk getur eflt sjálfstraustið, eignast nýja vini og sinnt áhugamálum sínum. Því miður er sú þróun að eiga sér stað að færri ungmenni nýta sér þessi tækifæri. Á sama tíma fer andleg líðan ungs fólks versnandi og fleiri ungmenni upplifa sig útundan í samfélaginu. Þessi þróun er sérstaklega áberandi hjá ungu fólki í viðkvæmri félagslegri stöðu sem eiga í hættu á að enda á jaðri samfélagsins. Til að efla félagslega þátttöku ungmenna eru ýmsar hindranir sem þarf að yfirstíga.

Þverrandi félagsleg þátttaka ungmenna er sameiginleg áskorun Norðurlandana. Því hefur Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við dönsku hugveituna Mandag morgen, ákveðið að leiða saman ungt fólk, sérfræðinga, fulltrúa félagasamtaka og valdhafa í samtal um málefnið á öllum fimm norrænu lýðræðishátíðunum. Hér munum við reyna að svara spurningunni: Hvernig virkjum við allt unga fólkið okkar og eflum þau félagslega?

Samstarfsaðili:

Mandag Morgen

Þátttakendur:

  • Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins Headspace
  • Fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur