Réttindi neytenda í Noregi
Hvaða réttinda nýtur þú við kaup á vörum og þjónustu í Noregi?
Þú átt rétt á að kvarta ef varan sem þú kaupir er gölluð eða ef henni er ábótavant. Sá réttur nefnist „reklamasjonsrett“ (réttur til kvörtunar). Mismunandi er eftir vörum hve lengi sá réttur er í gildi. Til dæmis er hann tvö ár fyrir fatnað og skó og fimm ár fyrir síma og húsgögn. Þegar vörur eru keyptar í verslum ákveður verslunin hvort þú getir skipt vörunni út eða fengið endurgreitt. Neytendaráð heldur úti yfirliti yfir reglur um mismunandi vörur á vefsíðum sínum.
Ef þú sérð eftir kaupum skaltu athuga hvort þú getir hætt við kaupin. Þú átt rétt á að hætta við kaup þegar þú kaupir vörur á netinu, við dyrasölu eða á öðrum stöðum utan verslana. Í venjulegum verslunum nýtur þú yfirleitt ekki slíks réttar.
Ætlar þú að versla við erlenda netverslun?
Ef þú verslar við erlenda netverslun skaltu kynna þér reglur um tolla og gjöld. Tolletaten gefur góðar upplýsingar um þetta.
Þetta er mikilvægt að athuga:
- Hvort verslunin sé VOEC-skráð
- Hvaða gjöld eiga við
- Hvað gerist ef þú vilt fá endurgreitt
Hver getur aðstoðað ef eitthvað fer úrskeiðis?
Neytendaráð vinnur að því að neytendur fái það sem þeir eiga rétt á og aðstoðar við vandamál við kaup á vörum og þjónustu í Noregi. Þú getur beðið það um ráðgjöf eða sent inn kvörtun vegna kaupa.
Ef þú hefur keypt eitthvað í öðru Evrópuríki getur þú fengið aðstoð frá Forbruker Europa. Það er sérstök þjónusta neytendaráðanna fyrir kaup frá öðrum Evrópulöndum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.