Yfirlýsing formennsku Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins

17.03.26 | Fréttir
Ville Väyrynen på talerstolen under Nordisk råds sesjon 2025.

Ville Väyrynen på talerstolen under Nordisk råds sesjon 2025.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Formennska Norðurlandaráðs tekur til greina ákvörðun ríkisstjórnanna frá því í gær, 16. mars 2026, um að setja á fót nefnd til að semja breytingartillögur fyrir endurskoðaðan Helsingforssamninginn.

Ville Väyrynen, forseti Norðurlandaráðs, segir: „Formennska Norðurlandaráðs óskar eftir því að ríkisstjórnirnar veiti nefndinni aukið umboð í samræmi við tilmælin. Vilji ríkisstjórnanna til að styrkja stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja í norræna samstarfinu er aðeins einn af mörgum hlutum sem þarf að endurskoða.“

Formennska Norðurlandaráðs vil undirstrika að tilmæli Norðurlandaráðs til ríkisstjórnanna um endurskoðun Helsingforssamningsins eru skýr. Norðurlandaráð er samstíga um að hvetja norrænu ríkisstjórnirnar til að kanna möguleikann á að endurskoða marga hluta Helsingforssamningsins, hina svonefndu norrænu stjórnarskrá. 

Helsingforssamningurinn hefur ekki verið endurskoðaður í meira en 30 ár og er hann ekki í samræmi við metnað og áskoranir norræna samstarfsins í dag. Því er þörf á að endurskoða greinar hans og þau svið sem nefnd eru í tilmælunum, svo sem hvað varðar öryggis- og varnarmál, loftlagsmál og líffræðilega fjölbreytni, börn og ungmenni, stjórnsýsluhindranir, velferð, menningu, menntun og rannsóknir sem og stafvæðingu og innviði. 

Formennska Norðurlandaráði vill einnig undirstrika að Norðurlandaráð vill vera hluti af nefndinni sem mun vinna að endurskoðun samningsins, sérstaklega þar sem nefndin mun vinna að greinum sem hafa áhrif á starf Norðurlandaráðs. 

Formennska Norðurlandaráðs styður því að norrænu ríkisstjórnirnar stofni nefndina en vill tryggja þátttöku Norðurlandaráðs í henni og að nefndin fái vítt umboð til að vinna að endurskoðun á öllum sviðum tilmælanna.