Jafnræði í ráðgjöf á enn langt í land á Norðurlöndum
Örar breytingar eru á vinnumarkaði og markaðurinn fyrir færniþróun verður æ margslungnari. Fyrir vikið hefur almenningur vaxandi þörf fyrir hlutlausa ráðgjöf.
.
NVL hefur gefið útskýrsluna „Samordning av vägledningen i de nordiska länderna, Färöarna, Grönland och Åland“ (Samhæfing ráðgjafar á Norðurlöndum, einnig Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi) um hvernig samstarfi hinna ýmsu ráðgjafaraðila er háttað.
Samhæfingu skortir
Skýrslan sýnir að ráðgjöfin er ekki nægilega samhæfð milli menntakerfisins og vinnumarkaðar á Norðurlöndum. Menntamálaráðuneytin sjá um ráðgjöf innan menntakerfisins og vinnumálaráðuneytin um ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur og einnig að einhverju marki fyrir fólk sem er í vinnu.
Vilji löndin skýrar leikreglur og jafnræði í ráðgjöf í öllum landshlutum er það mat NVL að bæta þurfi samhæfingu milli geira.
Skipulögð samhæfing er undir því komin að löndin móti sér stefnu og setji reglur og/eða löggjöf um lífslanga ráðgjöf.
Einnig mætti hugsa sér vettvang fyrir þróun ráðgjafar í löndunum.
Ráðgjöf mikilvæg fyrir símenntun
Framboð á ráðgjöf verður æ mikilvægara alls staðar á Norðurlöndum og víðar í Evrópu enda er ráðgjöf mikilvægur hvati og stuðningur við símenntun. Lífslöng ráðgjöf hjálpar fólki á öllum aldri að þekkja leikni sína, færni og áhugamál.
Markmiðið með könnuninni er að stuðla að samhæfðri ráðgjöf á Norðurlöndum, einnig Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi. Niðurstöðurnar eiga að auðvelda löndunum að þróa ráðgjafarkerfi þar sem þau geta borið sig saman við hugmyndir og reynslu hvert annars.
Halið skýrsluna niður og lesið nánar: http://bit.ly/samordning