Norræna ráðherranefndin nútímavæðir fjárhagsáætlunina
Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 verður farið að tilgreina markmið og áætla árangur af einstökum fjárlagaliðum, en fram að þessu hefur megináherslan verið á forgangsröðun.
Sem fyrr inniheldur hver fjárlagaliður upplýsingar um fjárhagsáætlun viðkomandi árs en einnig frá undanförnum tveimur árum, þar kemur fram hve stórum hluta fjárhagsáætlunarinnar var ráðstafað á fyrra ári og hver hefur umboð til að ráðstafa fjárveitingu. Hver fjárlagaliður inniheldur auk þess lýsingu á markmiði fjárveitingarinnar.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 skiptist í þrjá hluta: Samstarfsráðherrarnir hafa ákveðið að nútímavæða norrænu fjárhagsáætlunina í samræmi við fyrri ákvörðun um forgangsröðun og tímaramma fyrir fjárhagsáætlun ársins 2015 (leiðbeiningar um gerð fjárhagsáætlunar). Þetta hefur í för með sér ýmsar breytingar á uppsetningu fjárhagsáætlunarinnar.
Lesið nánar um verkefna- og fjárhagsáætlun hér: Verkefna- og fjárhagsáætlun 2015