Hagvöxtur og sjálfbær þróun geta farið hönd í hönd

04.11.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Firat Celik
Flýta þarf fyrir sjálfbærri þróun, auðveldara þarf að vera að fjármagna hana og mikil tækifæri eru til þess að skapa hagvöxt og hagnað á sama tíma. Þetta eru skilaboðin sem norrænir ráðherrar munu taka með sér á COP30 í Brasilíu.

Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands, Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar, Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs og Margit Stórá, umhverfisráðherra Færeyja, ræddu sýn sína á viðræðurnar sem fram undan eru á COP30. Jafnframt buðu þau til samtals við fulltrúa úr vísindasamfélaginu, borgaralegu samfélagi og atvinnulífinu. Markmið umræðnanna var að finna leiðir til að Norðurlöndin gætu sem best stuðlað að því að COP30 beri árangur.

Norðurlönd geta bæði verið græn og samkeppnishæf

Finnland, sem fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni, reið á vaðið og var með skýr skilaboð:
„Hagvöxtur og sjálfbær þróun geta farið hönd í hönd,“ sagði Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands. Undir þetta tók sænski ráðherrann. Hún benti á að mikilvægt sé að koma þessum skilaboðum skýrt á framfæri til mótvægis við lönd sem eru andsnúin grænum umskiptum:
„Norrænu löndin þurfa að segja og sýna heiminum að maður verði ekki gjaldþrota á því að velja græna leiðina heldur þvert á móti,“ sagði Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar.

Við þurfum að spýta í lófana

„Við þurfum að brúa bilið á milli stöðunnar eins og hún er í dag og markmiða Parísarsamningsins,“ sagði Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs. Í þessu samhengi benti ráðherrann á mikilvægi þess að aðlaga umgjörð fjármögnunar þannig að fjármagnið skili sér með hraðari hætti inn í lausnirnar. Almennt voru ráðherrarnir á því að Norðurlönd og heimurinn allur væri ekki á þeim stað sem æskilegt væri að vera á miðað við markmið Parísarsamningsins. Of hægt gengur að þróa, fjármagna og innleiða sjálfbærar aðgerðir.

Virðing fyrir réttindum frumbyggja

Christian Stenberg, skrifstofustjóri loftslags-, orku- og veitumálaráðuneyti Danmerkur lagði fyrir hönd ráðherrans, Lars Aaagard, áherslu á þörfina á aðlögun að sjálfbærri þróun. Danmörk lagði í því samhengi einnig áherslu á mikilvægi þess að vernda og virða réttindi frumbyggja.

Hafið – græn sýn á bláa hagkerfið

Margit Stórá, umhverfisráðherra Færeyja, vakti máls á mikilvægi þess að huga að hafinu sem gegnir lykilhlutverki fyrir norðurslóðir og Norðurlönd almennt. Ráðherrann benti á að efnahagslegir þættir yrðu að fara hönd í hönd við umhverfissjónarmið og tækifærin til að geyma koldíoxíð í hafsbotni.

Norræni skálinn á COP30 á að veita innblástur

Auk þess að taka þátt í viðræðum á COP30 verða norrænir ráðherrar, í gegnum Norrænu ráðherranefndina, einnig með sýningarskála á COP30. Þar munu ýmsir ráðherrar, auk Karenar Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, taka þátt í pallborðsumræðum o.fl. Skálinn verður jafnframt vettvangur norrænna verkefna og skýrslna sem eiga að veita öðrum löndum grænan innblástur. 
„Við ætlum ekki bara að vera á staðnum á COP30, við ætlum að eiga frumkvæðið. Við viljum að norræni skálinn verði vettvangur umræðna, nýsköpunar og samstarfs,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.