Efnahagslegur viðbúnaður og áherslur á umbrotatímum

12.11.25 | Fréttir
Finans
Ljósmyndari
Norden

Riikka Purra, fjármálaráðherra Finnlands, og Mats Perämaa, fjármálaráðherra Álandseyja.

Norrænir efnahags- og fjármálaráðherrar leggja áherslu á þörfina á öflugu norrænu samstarfi til að treysta viðnámsþrótt fjármálamarkaða gagnvart blönduðum ógnum og skapa stöðugleika og velsæld á ótryggum tímum í alþjóðamálum.

Sem formennskulönd í Norrænu ráðherranefndinni stóðu Finnland og Álandseyjar fyrir fundi norrænu efnahags- og fjármálaráðherranna þar sem efnahagslegur viðnámsþróttur og samkeppnishæfni Norðurlanda var efst á baugi.

„Efnahagsmál í heiminum einkennast af aukinni óvissu og Norðurlönd standa frammi fyrir öryggispólitískum veruleika sem krefst fjárfestinga í varnar- og öryggismálum. Það skiptir sköpum að við nálgumst þessar áskoranir af ábyrgum hætti ásamt því að um leið bæta skilyrði fyrir samkeppnishæfni Norðurlanda,“ sagði Riikka Purra, fjármálaráðherra Finnlands.

Viðnámsþol fjármálamarkaða skiptir sköpum fyrir Norðurlönd

Norrænir fjármálamarkaðir eru á meðal þeirra samþættustu í heimi. Að tryggja vel starfandi og stöðuga fjármálamarkaði og greiðslulausnir, einkum á krísutímum, er grundvallaratriði fyrir heildarviðnámsþrótt hagkerfa og samfélaga á Norðurlöndum. Ráðherrarnir ræddu þær áskoranir sem breytt staða í öryggismálum, m.a. vegna blandaðra ógna, felur í sér fyrir stöðugleika fjármálamarkaða Þeir voru einhuga um að aðstæðurnar kalli á bæði innlendar og samnorrænar aðgerðir til að efla efnahagslegan viðbúnað á Norðurlöndum og ræddu slíkar aðgerðir.

„Öll norrænu löndin verða fyrir áhrifum vegna efnahagslegra og geópólitískra aðstæðna í kringum okkur. Forsendur okkar eru mismunandi en það er sameiginlegt verkefni okkar að tryggja öflug og samkeppnishæf hagkerfi og trausta fjármálamarkaði á Norðurlöndum, sérstaklega á krísutímum,“ sagði Mats Perämaa, fjármálaráðherra Álandseyja.

Geópólitísk óvissa kallar á nýjar áherslur í efnahagsmálum

Vaxandi efnahagsleg óvissa, geópólitískar breytingar og ný staða í öryggismálum skapa ný skilyrði í ríkisfjármálum landanna, ekki síst með tilliti til verulega aukins kostnaðar við varnar- og öryggismál. Ráðherrarnir voru sammála um að efnahagsstefna gegni lykilhlutverki við að tryggja að efling varnarmála og öryggis á Norðurlöndum verði árangursrík og sjálfbær. Þeir lögðu jafnframt áherslu á mikilvægi aðgerða og umbóta á sviði ríkisfjármála til að auka langtímavöxt og alþjóðlega samkeppnishæfni norrænu landanna.