Síðustu forvöð að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

14.04.25 | Fréttir
miljøpris 2025 skov
Ljósmyndari
James Wheeler, unsplash
Vist þú um verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum? Mundu þá að senda inn tillögu að tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 í síðasta lagi 30. apríl.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2025 verða veitt verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum. Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna. Þema umhverfisverðlaunanna er mismunandi frá ári til árs og í ár er sjónum beint að framlagi borgarasamfélagsins til grænna umskipta.

Þegar samfélagið stendur saman og vinnur að sameiginlegum markmiðum getum við náð miklum árangri á stuttum tíma. Og tíminn skiptir öllu hvað varðar umhverfis- og náttúruvernd og grænu umskiptin. Við þurfum að ná árangri og það þarf að gerast hratt. Það gerist aðeins með virku og öflugu borgarasamfélagi. 

Úr lýsingu verðlaunanefndarinnar á þema ársins 2025

Öllum er frjálst að senda inn tillögur

Veist þú um norrænt fyrirtæki, samtök eða einstakling sem verðskuldar að hljóta umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár? Sendu þá inn tillögu í síðasta lagi 30. apríl.

Svona er verðlaunahafinn valinn

Handhafi umhverfisverðlaunanna er valinn í þríþættu ferli:

  • Allir geta sent inn tillögur að tilnefningum
  • Dómnefndir landanna tilnefna 1–2 kandídata
  • Dómnefndin kemur samar og velur sigurvegara

Tilkynnt verður um tilnefningar þann 27. júní í tengslum við Almedalsvikuna í Svíþjóð. Verðlaunahafinn fær afhenta verðlaunastyttu við athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október 2025. Verðlaunahafinn hlýtur 300.000 danskar krónur.

Verðlaunin eru 30 ára

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru 30 ára í ár. Þegar verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 1995 var það sænski vísindamaðurinn Torleif Ingelög sem hlaut þau fyrir framlag sitt til verndunar líffræðilegrar fjölbreytni í landbúnaði og skógrækt. Síðan þá hafa verðlaunin verið veitt alls 30 sinnum og á meðal verðlaunahafa eru útivistarsamtök, þrír bankar, margs konar sprotafyrirtæki, orkufyrirtæki og fjöldi norrænna vísindamanna. Árið 2019 hlaut Greta Thunberg frá Svíþjóð verðlaunin en í mótmælaskyni við aðgerðaleysi í loftslagsmálum neitaði hún að þiggja þau.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðsvoru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Norðurlandaráð veitir einnig bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun.