Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 30 ára

25.03.25 | Fréttir
miljøpris 2025 temafoto

Miljøprisen sætter i år fokus på  civilsamfundets bidrag till den grønne omstilling. 

Ljósmyndari
James Wheeler, Unsplash

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995.

Frá árinu 1995 hafa umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs hyllt norræn samtök, fyrirtæki og einstaklinga sem unnið hafa mikilsvert starf í þágu umhverfisins. Þegar verðlaunin verða veitt næst nú í október munu þau fara til verkefnis sem virkjar almenning í grænum umskiptum.

Með þema ársins, sem er Þáttur borgarasamfélagsins í grænum umskiptum, beinir Norðurlandaráð kastljósinu að mikilvægi þess að almenningur taki þátt í grænu umskiptunum. 

„Virk þátttaka borgarasamfélagsins er forsenda grænna umskipta og skiptir sköpum til að við getum gert þær úrbætur sem eru nauðsynlegar á náttúru okkar og umhverfi,“ segir Anna Jöborn, formaður verðlaunanefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

„Í 30 ár hafa umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs hampað verkefnum sem stuðla að sjálfbærri þróun á svæðinu. Eftir því sem áskoranir í loftslags- og umhverfismálum verða æ meira áberandi skiptir enn meira máli að við vinnum saman að því að finna sameiginlegar lausnir,“ heldur hún áfram.

Auk þess að vera þema ársins er aðkoma borgarasamfélagsins stór þáttur í verðlaununum almennt þar sem öllum gefst færi á að stinga upp á tilnefningum til verðlaunanna. Norræna húsið í Reykjavík hefur umsjón með verðlaununum og þau nema 300.000 dönskum krónum.

Hér má lesa nánar um þema ársins. Þátttaka samfélagsins – verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum

Þátttaka samfélagsins – verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum

Án þátttöku almennings í náttúru- og umhverfismálum yrði erfitt að búa í haginn fyrir sjálfbæra framtíð. Allir aðilar í samfélaginu þurfa að taka þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sinna hinum grænu umskiptum og taka nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi.

Þegar samfélagið stendur saman og vinnur að sameiginlegum markmiðum getum við náð miklum árangri á stuttum tíma. Og tíminn skiptir öllu hvað varðar umhverfis- og náttúruvernd og grænu umskiptin. Við þurfum að ná árangri og það þarf að gerast hratt. Það gerist aðeins með virku og öflugu borgarasamfélagi.

Þátttaka almennings getur verið af ýmsu tagi, t.d. þátttaka í félagasamtökum eða einstaklingsframtak sem stuðlar að sjálfbærni og þekkingu um umhverfismál. Breyttar venjur geta skipt sköpum fyrir þróun í átt að sjálfbærri framtíð.

Til eru fjölmörg dæmi um að þekking almennings nýtist til vísindarannsókna, svo kölluð lýðvísindi. Sem dæmi um slíkt má taka athuganir fuglaáhugafólks eða baráttuna gegn ágengum tegundum. Þessi verkefni eru ekki aðeins mikilvæg fyrir gagnasöfnun heldur einnig til að auka þekkingu og þátttöku almennings.

Fyrri verðlaunahafar

Þegar verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn var það sænski vísindamaðurinn Torleif Ingelög sem hlaut þau fyrir framlag sitt til verndunar líffræðilegrar fjölbreytni í landbúnaði og skógrækt. Síðan þá hafa verðlaunin verið veitt alls 30 sinnum og á meðal verðlaunahafa eru útivistarsamtök, hótelkeðja, þrír bankar, umhverfisverndarsamtök, margs konar sprotafyrirtæki, orkufyrirtæki og fjöldi norrænna vísindamanna. Árið 2019 hlaut Greta Thunberg frá Svíþjóð verðlaunin en í mótmælaskyni við aðgerðaleysi í loftslagsmálum neitaði hún að þiggja þau.

Svona er verðlaunahafinn valinn

Handhafi umhverfisverðlaunanna er valinn í þríþættu ferli:

  • Allir geta sent inn tillögur að tilnefningum
  • Dómnefndir landanna tilnefna 1–2 kandídata
  • Dómnefndin kemur samar og velur sigurvegara

Tilnefningarnar í ár verða tilkynntar þann 27. júní í tengslum við Almedalsvikuna í Svíþjóð. Verðlaunahafinn fær afhenta verðlaunastyttu við athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október 2025.

Sendu inn tillögu að tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Allir geta stungið upp á tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Frestur til að senda inn tilnefningar er til miðvikudagsins 30. apríl. Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem öðrum til eftirbreytni hefur samþætt umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar. Auk heiðursins fær verðlaunahafinn 300 þúsund danskar krónur.