Taktu þátt í norrænni COP30 kynningu

24.10.25 | Fréttir
cop30 kick off 2025
Ljósmyndari
norden.org

Efst frá hægri: Margit Stórá, umhverfisráðherra Færeyja, Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar, Suzanne Dael, Umhverfismálastofnun Evrópu, Ghita Borring, Concito, Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs og Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands.

 

Leiðtogafundur í Stokkhólmi Fjórir norrænir loftslagsráðherrar hittast í Stokkhólmi á kynningu fyrir COP30 – og þér býðst að taka þátt!

Norræna ráðherranefndin safnar undir yfirskriftinni metnaður, bandalög og framkvæmd, loftslagsráðherrum, borgarasamfélagi, vísindafólki og atvinnulífi til sameiginlegrar norrænnar kynningar í aðdraganda loftslagsviðræðnanna. Hér spyrjum við: Hvernig geta Norðurlönd stuðlað að góðri niðurstöðu samningaviðræðnanna í Belém? 

Allur heimurinn býr sig undir COP30

Einnig á Norðurlöndum. Miðvikudaginn 29. október, níu dögum áður en lönd heimsins koma saman á loftslagsráðstefnunni COP30 í Belém í Brasilíu, býður Norræna ráðherranefndin til norrænnar kynningar í Stokkhólmi. 

Hér munu Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar, Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands, Andreas Bjelland Eriksen, loftslags- og umhverfisráðherra Noregs og Margit Stórá, umhverfisráðherra Færeyja, greina frá sjónarmiðum sínum gagnvart samningaviðræðunum sem framundan eru og ræða um hlutverk Norðurlanda við aðila úr vísindasamfélaginu, borgarasamfélaginu og atvinnulífinu.

Auk ráðherranna leggur Suzanne Dael frá Umhverfismálastofnun Evrópu fram meginniðurstöður höfuðskýrslu stofnunarinnar „Europe’s Environment 2025“ og Ghita Borring fra hugsmiðjunni Concito mun tala fyrir mikilvægi jákvæðrar framtíðarsýnar og hlutverki vonar við að knýja áfram græn umskipti.

Norræna kynningin veitir okkur tækifæri til að ræða hvar við stöndum og hvernig við getum sameiginlega stuðlað að góðri niðurstöðu á COP30 í Belém. Þegar fjölþjóðasamvinna á undir högg að sækja og hnattrænar áskoranir bitna á okkur öllum verður samstarfið stöðugt mikilvægara.

Karen Ellemann framkvæmdastjóri

Takið þátt

Viðburðinum verður streymt og þegar þú skráir þig gefst þér kostur á að senda spurningu til norrænu ráðherranna.

Åsa Persson, formaður sænsku loftslagsstefnunefndarinnar og stefnumótunarráðgjafi og rannsakandi veð KTH Royal Institute of Technology’s Climate Action Centre, stýrir viðburðinum.

Um COP

Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna koma fulltrúar næstum allra landa heims saman til samninga undir merkjum loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC). 

COP er skammstöfun fyrir Conference of the Parties og á þessu ári koma löndin saman í þrítugasta sinn til að stuðla að aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. 

COP30 verður haldið í Belém í Brasilíu dagana 10.-21. nóvember 2025.

Á þessu ári eru tíu ár liðin frá því Parísarsamningurinn var samþykktur á COP21 í París.

Í samningaviðræðunum í Baku í fyrra var gengið frá síðustu atriðunum innan ramma Parísarsamningsins. Þess vegna er talað um að COP30 sé loftslagsráðstefna framkvæmda þar sem áherslan flyst frá samningum til framkvæmda.