Ungt fólk frá Brasilíu og Norðurlöndum kynnti loftslagstillögur fyrir COP30 á Hróarskelduhátíðinni

08.07.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Rebecca Skogø
Í síðustu viku lögðu Hróarskelduhátíðin og Norræna ráðherranefndin grunn að loftslagssamstarfi Brasilíu og Norðurlanda þegar æskulýðsfulltrúar SÞ tóku saman höndum um að setja saman sameiginlegar hugleiðingar og tillögur um hvernig uppfylla megi alþjóðleg loftslagsmarkmið sem teknar verða með á COP30 í Brasilíu.

Í síðustu viku voru 130 þúsund manns saman komin á stærstu tónlistarhátíð í Norður-Evrópu þar sem meðalaldurinn var 24 ár. Hátíð sem, líkt og Norræna ráðherranefndin, leggur áherslu á sjálfbæra framtíð, græn loftslagsmál og mikilvægi þess að virkja ungt fólk til að uppfylla þessi markmið. Norræna ráðherranefndin og Hróarskelduhátíðin lögðu saman grunninn að þessu brasilíska og norræna samstarfi á milli Marcele Oliveira, Presidency Youth Climate Champion (PYCC) fyrir COP30, Sigurd Seindal Krabbe og Mette Lundgaard, æskulýðsfulltrúa Danmerkur hjá SÞ á sviði umhverfis- og loftslagsmála, Kathrine Strange frá loftslagsráði ungs fólks í Danmörku og fleira ungs fólks.

Samstarfsverkefnið undirstrikar skuldbindingu Norrænu ráðherranefndarinnar um að efla raddir og áhrif ungs fólks í alþjóðlegu loftslagssamstarfi. Verkefnið er byggt á framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar um grænni, sjálfbærari og meira inngildandi Norðurlönd og tengir þá sýn við alþjóðlega stefnu í gegnum samstarf við aðila frá löndum í suðri.

Samvinna norðurs og suðurs greiðir leið sameiginlegra loftslagstillagna

Í vikunni tók æskulýðsfulltrúar SÞ þátt í ýmsum vinnustofum, viðburðum og fundum með fjölda ungs fólks, meðal annars frá Climate Live, Den Grønne Ungdomsbevægelse, Extinction Rebellion Norge og Den Nordiske Koalition. Markmiðið var að móta sameiginlegar tillögur sem teknar verða með á COP30 og gert er ráð fyrir að þær verði kynntar í norræna skálanum og hafðar með í sjálfar samningaviðræðurnar. Sem opinberir æskulýðsfulltrúar hafa þau aðgang að samningaborðinu sem skapar fágætt en mikilvægt tækifæri til að láta hugmyndir og raddir ungs fólks heyrast þar sem ákvarðanir eru teknar.

Tillögurnar verða kynntar í upphafi COP30

Tillögurnar eru enn í vinnslu og verða þróaðar frekar á röð funda með viðkomandi æskulýðssamtökum og sérfræðingum áður en þær verða kynntar fyrir alþjóðlegum valdhöfum á COP30. Tillögurnar eiga það sameiginlegt að byggjast á því sjónarmiði að ungt fólk eigi að fá að taka þátt í vinnunni gegn loftslagsbreytingum ásamt viðurkenningu á því að loftslagsbreytingar hafi áhrif bæði í suðri og norðri og að brýn þörf sé á því að innleiða réttar lausnir.

Norræni skálinn á COP gefur ungmennum vettvang

Frá árinu 2015 hefur norræni skálinn verið samnorrænn vettvangur á COP þar sem ungt fólk fær tækifæri til að setja sín mál á dagskrá og hitta þá sem taka ákvarðanir. Þar eru rædd brýnustu málefni samtímans, allt frá kerfisbreytingum, loftslagsréttlæti og verndun líffræðilegrar fjölbreytni til þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku og hlutverks og áhrifa ungmennaráða í loftslagsmálum. Á COP30 mun norræni skálinn skapa vettvang fyrir ungmenni frá Norðurlöndum og öðrum löndum heims til að setja eigin mál á dagskrá og ræða svæðisbundnar og alþjóðlegar áskoranir í loftlagsmálum.