Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs kynntar 19. febrúar
Þann 19. febrúar kl. 11 að dönskum tíma verður tilkynnt hvaða verk hljóta tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2015. Það er dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs sem tilnefnir verkin, en hún er skipuð fulltrúum frá öllum norrænu löndunum.