Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

27.02.25 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Tilnefnd verk þessa árs gefa hinum fjölbreyttustu röddum rými. Sumar raddanna eru nafngreindar, sumar nafnlausar, sumar eru sögulegar, sumar skáldaðar, sumar síbreytilegar, sumar einmana, sumar hugfangnar og aðrar skipreika. Þau fjórtán verk sem í ár eru tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fjalla með mismunandi hætti um það að vera manneskja, að vera komin upp á náð og miskunn heimsins og möguleika og takmarkanir mannlegs eðlis.

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Samíska málsvæðið

Svíþjóð

Álandseyjum

Tilkynnt um verðlaunahafann 21. október

Tilkynnt verður um handhafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 hinn 21. október. Verðlaunagripurinn verður afhentur á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 28. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.

Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.