Þetta eru handhafar verðlauna Norðurlandaráðs 2024 – til hamingju!

22.10.24 | Fréttir

Vinderne af Nordisk Råds Priser med deres 'Nordlys' statuette i Reykjavík 29. oktober 2024

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg

Handhafar verðlauna Norðurlandaráðs 2024 með verðlaunagripi sína „Norðurljós“ 29. október í Reykjavík

Barnabók sem táknar andlegt ferðalag, verk sem verður til eftir að listamaðurinn hitti fiðluleikara fyrir tilviljun, framtíðarsýn konu um að nota eldfjöll til að byggja á sjálfbærari hátt, kvikmynd sem sýnir kynlíf sem öruggt efni samtalsefni í fjölskyldunni og djúp tilraun til að skilja fortíðina í gegnum einmana föður og gloppur minninganna. Þetta eru handhafar verðlauna Norðurlandaráðs 2024.

Höfundarnir Niels Fredrik Dahl og Jakob Martin Strid, tónskáldið Rune Glerup, arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir og kvikmyndaleikstjórinn Dag Johan Haugerud, ásamt framleiðendunum Yngve Sæther og Hege Hauff Hvattum, geta nú kallað sig handhafa verðlauna Norðurlandaráðs 2024. 

Í ár voru allar tilnefningar kynntar og greint frá sigurvegurum í sérstökum sjónvarpsþætti sem framleiddur var af Ríkissjónvarpinu á Íslandi. Í þættinum er farið vítt og breitt um Norðurlönd, sigurvegararnir heimsóttir og innsýn gefin í leiðina að sköpun verðlaunaðrar kvikmyndar, bókar, verks eða framlaga að loftlagsvænni heims sem ögrar kerfinu og byggingariðnaðinum. 

Fylgstu með tónlistarmanninum og kynninum Unnsteini Manuel hitta íslensk-danska listamanninn Ólaf Elíasson, hinn danska fyrri verðlaunahafa Anna Neye, finnska höfundinn Satu Rämö, sænsku söngkonuna Jenny Wilson og íslenska teiknarann Rán Flygenring þar sem þau eru stödd á Norðurlöndum og kynna sigurvegarana. 

Lesið nánar um handafana: 

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2024

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fara til Arnhildar Pálmadóttur fyrir þverfaglega nálgun og áherslu á minnkaða kolefnislosun og endurnýtingu byggingarefnis. Arnhildur er fjölhæfur sérfræðingur sem brennur fyrir breytingum í borgarskipulagi, arkitektúr og byggingariðnaði.

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 hlýtur Jakob Martin Strid frá Danmörku fyrir bókina „Den fantastiske bus“. Í Den fantastiske bus („Rútan rosalega“, hefur ekki verið þýdd á íslensku) fylgjumst við með stórfenglegu, 18.500 hestafla farartæki sem ekur beint inn í hjörtu lesenda í magnaðri frásögn um mikilvægi hugmyndaflugsins og vináttunnar.

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2024

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2014 hlýtur Rune Glerup frá Danmörku fyrir verkið „Om lys og læthed“. Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins pantaði verkið hjá Glerup, sem samdi konsertinn sérstaklega fyrir fiðluleikarann Isabelle Faust og í nánu samstarfi við hana. Verkið markar hátind á löngum og eftirtektarverðum ferli Glerups.

 

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2024

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 hlýtur norska kvikmyndin „Sex“ sem er skrifuð og leikstýrt af Dag Johan Haugerud og framleidd af Yngve Sæther og Hege Hauff Hvattum fyrir Motlys. Kynlíf er ekki bara kynlíf. Það hefur aldrei verið jafn greinilegt og í kvikmyndinni Sex eftir Dag Johan Haugerud. Í henni er kynlíf eins og glerstrendingur sem sýnir okkur allt litrófið.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 hlýtur Niels Fredrik Dahl frá Noregi fyrir bókina „Fars rygg“. Niels Fredrik Dahl hefur skrifað magnaða en jafnframt lágstemmda skáldsögu um það að fálma eftir hinu dulda og ókunna í eigin uppruna og þar með eftir áhrifum þess á mótun sjálfsmyndarinnar. „Fars rygg“ er djúp og sérstæð skáldsaga um glataðan tíma og rök eftirsjárinnar. 

VERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS

Bókmenntaverðlaunin eru elst verðlaunanna fimm og voru þau veitt í fyrsta sinn árið 1962, þá komu tónlistarverðlaunin til sögunnar árið 1965, kvikmyndaverðlaunin árið 2002 og að síðustu barna- og unglingabókmenntaverðlaunin árið 2013. Verðlaunin eru 350 þúsund danskar krónur.  

 

Uppfærsla 30. október 

Verðlaunahöfunum var boðið á þing Norðurlandaráðs á Íslandi til að taka við verðlaunagripnum „Norðurljós“ og ræða um mikilvægi menningar, m.a. við forseta Íslands frú Höllu Tómasdóttur, stjórnmálamenn og aðra gesti í Reykjavík 28.-29. október 2024.