Andrzej Tichý
Á kápu Händelseboken („Atburðabókin“) eftir Andrzej Tichý stíga fjórar beinagrindur ógurlegan danse macabre. Við höfum séð þetta áður: hér er á ferð þekkt táknsaga frá síðmiðöldum um það að líf okkar allra sé dans til móts við dauðann. Í skáldsögu Andrzej Tichý er þessi dauðadans stiginn á yfirgefnum leikvöllum og ögn dapurlegum pizzastöðum í Malmö en líka á óhrjálegum vændishúsum og landamærastöðvum í Evrópu.
Andrzej Tichý tekur ávallt afstöðu með þeim jaðarsettu og berskjölduðu, með börnunum. Í Händelseboken flytur hann slíkar persónur og frásagnir þeirra beint inn að miðjunni. Tungutak bókarinnar er handan allrar skynsemi – nálgast á stundum reiðilestur – og þindarlaust beinir það athygli lesandans að lágstéttinni, að kynþáttafordómum og stigveldi samfélagsins. Í stað hefðbundins frásagnarboga og skýrrar atburðarásar geymir Händelseboken urmul af röddum, sumum nafngreindum en öðrum nafnlausum, sumum sögulegum og öðrum skálduðum, sem allar draga upp mynd af brostnum tíma sem einkennist helst af skipbroti náungakærleikans.
Persónugallerí bókarinnar er næstum of stórt til að ná utan um. Landfræðileg staðsetning skáldsögunnar er í nágrenni Lindängen-hverfis í Malmö en þrátt fyrir það hefur Tichý skrifað evrópskt skáldvert, krökkt af frásagnarbrotum úr hinum mörgu bakgörðum heimsálfunnar. Tímalínan er ekki allskostar skýr og raddir falla inn í og út úr hver annarri. Smám saman fara fornöfn og frumlög einfaldlega að skipta minna máli. Í staðinn stígur fram marghöfða og sundurleitur kvartkór sem syngur yfir hinum sífellt hraðari dauðadansi samtímans.
Lesandinn er dreginn inn í sjö hundruð síðna langa þeytivindu af áköfum og áleitnum texta sem ómögulegt er að leggja frá sér. Formið flakkar á milli lengri frásagna, barnalegra ritgerðadraga, einræðna, stuttra brota og raunverulegra eða skáldaðra tilvitnana og hnitmiðaðra setninga. Hversdagurinn rennur saman við töfraraunsæi, hið lágkúrulega við hið djúpa, harmleikur við frelsandi kímni. Og Tichý er ávallt trúr persónum sínum. Engillinn Metatron fær orðið: „þau sem eru í útlegð, á flótta, er drekkt og hent í fangelsi, og þau sem eru undirokuð með vinnu sem gerir líkamann örþreyttan, tæmir andann og setur sálarlífinu skorður, þau eru í raun helgar verur.“
Með Händelseboken sýnir Andrzej Tichý að við erum öll nátengd hvert öðru; að jafnvel á brún hyldýpisins getum við deilt reynslu okkar. Þessi áleitna skáldsaga segir okkur að þrátt fyrir allt búi einnig möguleiki á róttækni og fegurð í þessu.
Andrzej Tichý, sem fæddur er 1978, er ein allra mikilvægasta rödd samtímans í sænskum bókmenntum. Hann vakti fyrst athygli með frumrauninni Sex liter luft árið 2005. Síðan þá hefur hann hlotið fjölda virtra verðlauna og enn fleiri verðlaunatilnefningar. Með Händelseboken heldur hann áfram að þroska höfundarverk sitt. Þema verksins hefur alþjóðlega skírskotun og djarft formið bætir einhverju alveg nýju og sérstöku við skáldsöguna sem bókmenntagrein. Händelseboken er tíunda bók Andrzej Tichý sem er nú tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í þriðja sinn.