Anu Kaaja

Ljósmyndari
Jirina Alanko
Anu Kaaja: Rusetti, skáldsaga, Kustantamo S&S, 2023. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Rusetti („Slaufan“) er listavel skrifuð bók sem líkja mætti við klippimynd eða þrískipta altaristöflu. Sögumaðurinn er nautnaseggur sem býður lesandanum í skoðunarferð um evrópskan menningararf í leit að andlegum, líkamlegum og vitsmunalegum unaði á söfnum, teknóklúbbum og kaffihúsum. Frásögnin hefur þrjá mismunandi stíla: sjálfsöguleg skrif, töfraraunsæi og listrænan esseyjustíl. Í henni fléttast saman léttleiki og alvara, unaður og þjáning, hugsun og leikur.

 

Í skáldsögunni fara fram súrrealísk samtöl við dauða hluti og hið gegndræpa eðli lífsins er kannað með því að varpa því á vináttu og mannleg tengsl. Lestrarupplifunin er fagurfræðileg nautn og hin ávallt nálæga slaufa – bow row rococo – er táknmynd merkingarlausrar fegurðar sem stendur fyrir valdbeitingu í samfélaginu. 

 

Tengsl mannskepnunnar við hluti eru ígrunduð á sprúðlandi munúðarfullan hátt. Í frásögnum bókarinnar eru manneskjur hlutgerðar og hlutir manngerðir. Þetta metafóríska nægtahorn má ýmist lesa sem esseyju eða sem svipmynd af samtíma þar sem áföll í ástarsamböndum skarast við alsælu í teknópartíum, eða sem hvort tveggja. Í gegnum hluti og listræna upplifun – Ungur héri eftir Dürer! Heitustu endurreisnarstrákarnir! Dramatískustu barokkinnréttingarnar! – er einnig fjallað um erfið viðfangsefni: togstreituna sem skapast þegar eftirsókn bóhemsins eftir unaði er stillt upp andspænis undirokun, ójöfnuði og heimi sem markaður er af kapítalísku arðráni og þjóðarmorðum. „Fegurð krefst hagnýtingar, krefst fegurð hagnýtingar?“ Allt gleymist þetta frammi fyrir listinni.

 

Anu Kaaja (f. 1984) er handritshöfundur og rithöfundur sem hlotið hefur mikið lof gagnrýnenda. Hún er með meistaragráðu frá Salford-háskóla og hefur einnig numið ritlist við mennta- og menningarmiðstöðina Kriittinen korkeakoulu í Finnlandi. Fyrir fyrri skáldsögu sína, Katie-Kate, fékk hún Kalevi Jäntti-verðlaunin. Frumraun Kaaja, súrrealískt smásagnasafn að nafni Muodonmuuttoilmoitus, hlaut Jarkko Laine-verðlaunin.