Future Minds - Svíþjóð
Á tímum þar sem loftslagskreppan og tap líffræðilegrar fjölbreytni krefjast tafarlausra aðgerða er þekking, þátttaka og aðgerðarhæfni ungs fólks lykilatriði. Future Minds er einstakt og inngildandi frumkvæði sem býr ungt fólk undir að færa sig frá fræðilegri þekkingu yfir í framkvæmd.
Future Minds er nýskapandi og aðgengilegur vettvangur þar sem skólar, atvinnulíf og samfélag koma saman til að umbreyta námi í raunverulegar breytingar. Frá upphafi hafa þúsundir nemenda og kennara í meira en 15 sveitarfélögum tekið þátt í að þróa lausnir á raunverulegum áskorunum tengdum sjálfbærni.
Meðal annars vinna nemendur í gegnum nýstárlega verkefnið Sustainability Hackathon með raunveruleg dæmi frá fyrirtækjum, opinberum aðilum og frjálsum félagasamtökum, svo sem IKEA, SEB, WWF og Unga forskare. Nemendur kynna lausnir sem hægt er að hrinda í framkvæmd. Þannig eru gagnrýnin hugsun, samvinnuhæfni og lausnamiðuð nálgun efld – og nemendur fara frá þekkingu til aðgerða.
Future Minds sker sig úr fyrir breidd og inngildingu, þar sem sérstök áhersla er lögð á að virkja ungt fólk í úthverfum og nemendur með litla námsáhuga. Vísindalega mótuð aðferðafræði styrkir rödd ungs fólks, trú á framtíðina og hæfni til að takast á við flóknar samfélagsáskoranir, þar á meðal rangfærslur og hraðar breytingar tengdar loftslagi, líffræðilegri fjölbreytni og sjálfbærri neyslu.
Future Minds á rætur að rekja til „Fryshuset“, sem er þekktur sænskur vettvangur á sviði inngildingar og þátttöku ungs fólks, með víðtæka reynslu af nýstárlegri kennslufræði. Verkefnið sem hér er tilnefnt hófst árið 2011 undir heitinu „We Change“ og þróaðist síðar í félagið „Future Minds“, sem hefur virkjað meira en 100.000 nemendur og þúsundir kennara. Það veitir verkefninu trúverðugleika og víðtækt umfang umfram einstaka skóla.
Hugmyndafræðin er yfirfæranleg og Future Minds hefur þróað skýra uppbyggingu sem gerir auðvelt að dreifa starfseminni á alþjóðavettvangi. Stafræn verkfæri Future Minds, myndbönd, námsáætlanir og gervigreindarstuðningur er auðvelt að innleiða og aðlaga að þeim áskorunum sem finnast bæði innan og utan Norðurlanda.
Þema ársins – að búa ungt fólk þekkingu, aðgerðarhæfni og rödd í umhverfis- og loftslagsmálum – er kjarninn í frumkvæðinu. Hér fer námið fram í gegnum valdeflingu nemenda á sama tíma og þeir leggja sitt af mörkum til raunverulegra breytinga.