Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2016
Hans Abrahamsen hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs fyrir söngbálk sinn „Let Me Tell You“. Það var tilkynnt rétt í þessu á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í tónleikahúsi DR í Kaupmannahöfn.
Rökstuðningur dómnefndar
Engum þeim, sem heyrir söngbálkinn „Let Me Tell You“ eftir Hans Abrahamsen, getur dulist að þar fer verk í hæsta gæðaflokki. Verkið býður upp á marglaga túlkun og ber vott um bæði ríkt innihald og fágun, með brothættum formgerðum sem þó eru teknar föstum tökum. Sinfónísk uppbyggingin kann að virðast hefðbundin, en er engu að síður nýstárleg og hugvitsöm og ljáir verkinu afar nútímalegan blæ.
Verkið er samið af miklum faglegum metnaði, ekki síst hvað varðar blandaða notkun á blæbrigðum hljómsveitarinnar, en einkum er sönghlutinn athyglisverður sökum þess hve snilldarlega tónskáldið færir sér í nyt rödd og tónlistargáfu Barböru Hannigan, sem verkið er skrifað fyrir. Hér eru hæfileikar hennar sannarlega nýttir til hins ítrasta.
Tilfinningaleg tjáning í verkinu er stórkostlega margbrotin, nákvæm og sterk, einkum í langa söngnum í lokin (líkt og í „Das Lied von der Erde“ eftir Mahler), þar sem hinir mörgu þættir verksins koma saman í heildstæða hugmynd.
Þegar á allt er litið mun þetta verk hljóta sinn sess á efnisskrám og vera metnaðarfullum sópransöngkonum áskorun um mörg ókomin ár.