Handhafi umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Grønne Nabofællesskaber
Ljósmyndari
norden.org
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2025 hlýtur verkefnið Grønne Nabofællesskaber frá Danmörku.

Rökstuðningur dómnefndar

Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 er Þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum. Verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum. Verkefnið Grønne Nabofællesskaber („Grænu nágrannasamfélögin“) hefur ríka tengingu við nærsamfélög á hverjum stað og byggist á löngun fólks til að rækta tengsl við nágranna gegnum starfsemi sem styður sjálfbæran lífsstíl. Starfsemin einkennist af heilindum, fer fram á grasrótarstigi og er aðgengileg þátttakendum. Dæmi um viðburði eru sameiginlegar máltíðir, flóamarkaðir eða trjáplöntunarverkefni á smáum skala sem stuðla að grænna umhverfi. Áherslan á samveru og samheldni ljær hinum sameiginlegu átaksverkefnum andlit raunverulegs fólks – þetta skiptir okkur máli af því að það skiptir nágranna okkar máli. 

Þetta er hreyfing sem gerir það bæði auðvelt og skemmtilegt að tileinka sér loftslagsvænni og sjálfbærari lífsstíl. Á fáeinum árum hefur hreyfingin vaxið og dafnað og telur nú yfir 300 hópa með fleiri en 30 þúsund virkum þátttakendum í Danmörku, og nú einnig í Noregi og Þýskalandi. Meðlimirnir segjast sjálfir vera „praktívistar, ekki aktívistar“.

Grønne Nabofællesskaber er hreyfing sem má laga að hvaða nágrannasamfélagi sem er, þar sem íbúar á hverjum stað ákveða sjálfir hver markmið starfsins skuli vera og hvers konar hóp þeir vilji mynda. 

Grønne Nabofællesskaber hefur átt frumkvæði að árlegum loftslagsaðgerðadegi sem 250 þúsund Danir tóku þátt í árið 2025. Viðburðurinn stuðlar að stolti, sýnileika og von um sameiginlegar aðgerðir. Þátttakendur í Grønne Nabofællesskaber hafa dregið umtalsvert meira úr kolefnislosun sinni en almennir danskir borgarar, samkvæmt væntanlegri rannsókn sem unnin var af Quentin Gausset og Camilla Nielsen-Englyst við Kaupmannahafnarháskóla.

Loftslagsvandinn, svo og sá vandi sem steðjar að líffræðilegri fjölbreytni, útheimtir víðtækan stuðning almennings. 
Grønne Nabofællesskaber hefur sýnt og sannað að það getur verið bæði skemmtilegt og gefandi að veita slíkan stuðning. Hreyfingin getur eflt starf að umhverfismálum í öllum norrænu löndunum með því að virkja almenning á praktískan hátt – með EINNI aðgerð og EINU samfélagi í einu.