Styrkir
Norðurskautsáætlun Norðurlanda 2025–2027 er skipt í tvo hluta sem báðir eiga að efla utanaðkomandi verkefni um norðurskautsmál og styðja stefnumarkandi aðgerðir:
Opin köll: Viðeigandi aðilar geta sótt um styrki til verkefna sem stuðla að markmiðum áætlunarinnar.
Forgangsverkefni: Aðgerðir sem hrundið er í framkvæmd að frumkvæði norrænu ríkisstjórnanna eða Norrænu ráðherranefndarinnar.
Þessari uppskiptingu er ætlað að tryggja bæði víðtæka þátttöku viðeigandi aðila og markvissar aðgerðir á stefnumarkandi forgangssviðum.