Norðurlönd á ársþingi Uartic og Ocean Connectivity-ráðstefnunni

26.05.26 | Fréttir
Faroe islands ocean
Ljósmyndari
Pipaluk Balslev/norden.org
Þessa dagana er kastljósið á Þórshöfn í Færeyjum, þar sem ársþing UArctic 2026 fer fram samhliða ráðstefnunni Ocean Connectivity. Þessir tveir viðburðir leiða saman hundruð vísindamanna, ráðamanna og fulltrúa frumbyggja frá öllum heimshornum.

Þátttakendum mun gefast tækifæri til að kynnast ýmsum norrænum rannsóknarstofnunum og áætlunum. Loftlagsbreytingar og tap líffræðilegrar fjölbreytni á nyrsta hluta okkar heimshluta kallar á nánari samvinnu á svæðinu, þekkingarmiðlun og samstarf um rannsóknir. Norðurlöndin hafa því mikla viðveru með ítarlegri dagskrá, virkri þátttöku og sérstökum norrænum upplýsingabás.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir norræna viðburði. Á þingi þessa árs er einnig vakin athygli á Nordic Arctic Programme, sem síðastliðin 30 ár hefur stuðlað að sköpun þekkingar og samvinu um sjávarumhverfi og loftlagsbreytingar, réttindi frumbyggja og efnahagsþróun á norðurslóðum.

Ocean Connectivety-ráðstefnan er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni.

Norrænir viðburðir á ársþingi UArctic og OCC

Þriðjudagur 26. maí

11:00–11:55 (UArctic)
Addressing Non-Economic Losses to Climate-Induced Events in the Arctic – the LostToClimate Research Project
NordForsk
 

16:20–17:15 (UArctic)
Innovation and Entrepreneurs: The Role of Local Universities
NORA

 

Miðvikudagur 27. maí

14:15–15:10 (UArctic)
Enabling Indigenous Research Leadership Through Capacity Building (lokaðar hringborðsumræður)
NordForsk

17:25–18:20 (UArctic)
Arctic Marine Biodiversity: Current Insights and Knowledge Gaps
NordForsk

 

Fimmtudagur 28. maí

11:00–11:55 (UArctic)
Community-Based Environmental Monitoring in the Arctic: From Guidelines to Practice
Norræna náttúruáætlunin

11:15–12:15 (OCC)
The Arctic Council’s Actions for Arctic Biodiversity 2025–2035: Charting a Path for Biodiversity in the Arctic
Norræna náttúruáætlunin

14:00–14:55 (UArctic)
New Evidence of Rapid Climate Change – AMAP Climate Change Update Report
Norræna náttúruáætlunin