Kennitala í Finnlandi

Kennitala er einstaklingsbundið auðkenni sem þarf að nota í ýmsum aðstæðum. Á þessari síðu finnur þú upplýsingar um hvernig þú getur fengið finnska kennitölu ef þú flytur til Finnlands, byrjar að vinna í Finnlandi eða stundar þar nám á fullorðinsaldri.

Kennitala er auðkenni sem er sértækara en t.d. nöfn einstaklinga. Finnsk kennitala er veitt til notkunar í lengri tíma en þau sem dvelja tímabundið í Finnlandi geta þó einnig fengið hana í vissum tilvikum. 

Það að einstaklingur fái finnska kennitölu hefur ekki áhrif á kennitölur hans í öðrum löndum. Finnsku kennitöluna skal nota í Finnlandi en kennitölur annarra landa í viðkomandi landi.

Til hvers þarft þú finnska kennitölu?

Þú þarft finnska kennitölu til að hægt sé að auðkenna þig í gagnagrunnum finnskra yfirvalda. Kennitala er einnig notuð þegar sótt er um lífeyri og aðrar bætur og einnig þegar laun eru greidd. Einkareknar stofnanir, svo sem bankar og tryggingafélög, geta einnig þurft kennitölu til að auðkenna viðskiptavini sína.

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Finnsku stofnunarinnar um stafvæðingu og lýðfræðigögn (DVV).

Hvernig getur þú fengið finnska kennitölu?

Ef þú ert ríkisborgari norræns ríkis færð þú kennitölu þegar þú flytur til Finnlands. Ef þú ætlar aðeins að dvelja tímabundið í Finnlandi þarftu að færa rök fyrir því að þurfa kennitölu í landinu. Slík rök geta verið nám eða vinna í Finnlandi eða önnur sambærileg ástæða. 

Ef þú ert ekki ríkisborgari norræns ríkis þarft þú annaðhvort að framvísa skráningarvottorði dvalarleyfis fyrir borgara Evrópusambandsins, dvalarleyfiskorti eða öðru sem sýnir fram á að þú dveljir löglega í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Skráning í þjóðskrá í Finnlandi.

Þú getur sótt um kennitölu, og um leið tilkynnt flutning til lengri eða skemmri tíma, með því að fylla út rafrænt eyðublað á síðu finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV). Auk þess að fylla út rafrænt eyðublað munt þú þurfa að mæta í eigin persónu í útibú DVV til þess að fá kennitöluna. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði DVV.

Ef þú ert ekki að flytja til Finnlands og hefur skattatengdar ástæður fyrir því að þurfa finnska kennitölu getur þú sótt um kennitölu hjá finnskum skattayfirvöldum (Verohallinto). Á vefsvæði finnskra skattayfirvalda eru nánari upplýsingar um  finnska kennitölu sem veitt er í tengslum við skattamál.

Finnskur ríkisborgari sem fæddur er í öðru landi fær kennitölu þegar finnska stofnunin um stafræna væðingu og lýðfræðigögn hefur skráð barnið í finnsku þjóðskrána samkvæmt beiðni foreldra. Nánari upplýsingar um að skrá barn sem fæðist í öðru landi í finnsku þjóðskrána eru á vefsvæði finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV).

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.