Skráning í þjóðskrá í Finnlandi

Á þessari síðu eru upplýsingar um það að skrá sig í þjóðskrá í Finnlandi og tilkynna flutning, og um búsetusveitarfélag þegar flutt er til Finnlands. Þær reglur sem hér er greint frá gilda einnig á Álandseyjum.

Þjóðskrá eða mannfjöldaupplýsingakerfi Finnlands er landsbundinn rafrænn gagnagrunnur þar sem finna má uppfærðar upplýsingar um finnska ríkisborgara og fólk frá öðrum löndum sem er búsett í Finnlandi til lengri eða skemmri tíma. Upplýsingar gagnagrunnsins eru notaðar við upplýsingastjórnun á ýmsum sviðum samfélagsins, til dæmis í opinberri stjórnsýslu, við undirbúning kosninga, við skattlagningu og í dómstólasýslu, auk rannsókna og samantektar á hagtölum. Nánari upplýsingar um þjóðskrána eru á vefsvæði finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (Digi- ja väestötietovirasto), sem hefur umsjón með þjóðskránni.

Ef þú uppfyllir tiltekin skilyrði er hægt að vista upplýsingar um þig í þjóðskrá Finnlands og þá færð þú finnska kennitölu og ert skráð/ur til búsetu í tilteknu sveitarfélagi. Í vissum tilvikum getur þú fengið kennitölu þó að búseta þín í Finnlandi teljist ekki varanleg. Nánari upplýsingar um finnska kennitölu eru á síðunni Finnsk kennitala.

Athugaðu að úrskurður frá stofnuninni um stafræna væðingu og lýðfræðigögn veitir þér ekki sjálfkrafa rétt til að eiga aðild að finnskum almannatryggingum og fá bætur frá almannatryggingastofnuninni Kela. Réttur til almannatrygginga og bóta í Finnlandi er ákvarðaður á grundvelli þar til gerðra umsókna. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Athugaðu einnig að þó að þú tilkynnir stofnuninni um stafræna væðingu og lýðfræðigögn um nýtt heimilisfang þitt, þá er ekki víst að upplýsingarnar berist öllum stofnunum sem kunna að senda þér póst. Ef þú vilt tryggja að allur póstur berist þér á nýtt heimilisfang skaltu tilkynna breytinguna öllum þeim stofnunum sem senda þér reglulega póst.

Hvernig skráir þú þig í þjóðskrá í Finnlandi?

Þær leiðbeiningar sem eiga við um þitt tilfelli eru mismunandi eftir því frá hvaða landi þú flytur til Finnlands og hversu lengi þú ætlar að búa í Finnlandi. Veldu það sem passar við þínar aðstæður úr fellilistanum hér fyrir neðan. 

Finnskur ríkisborgari

Ef þú ert finnskur ríkisborgari og flytur frá öðru norrænu landi til Finnlands þarft þú að tilkynna um flutninginn í síðasta lagi innan mánaðar frá því að flutt er. Þegar flutt er frá öðru norrænu landi til Finnlands þarf ávallt að mæta í eigin persónu í útibú stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV), auk þess að tilkynna flutninginn rafrænt. Það er gert til þess að hægt sé að staðfesta deili á þér og þeim fjölskyldumeðlimum sem flytja með þér. Þið þurfið því að mæta í útibú stofnunarinnar með gild skilríki, svo sem vegabréf. 

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði DVV, á undirsíðunum um flutninga milli Norðurlanda.

Norrænir ríkisborgarar

Ef þú ert borgari annars norræns ríkis sem flytur til Finnlands skaltu skoða leiðbeiningar DVV á síðunni um erlenda ríkisborgara sem flytja frá Finnlandi og til Finnlands. 

Borgarar norrænna landa þurfa ekki sérstakt dvalar- eða atvinnuleyfi til að dvelja í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Dvalar- og starfsleyfi í Finnlandi.

Ef þú hefur enn ekki fengið finnska kennitölu skaltu skoða leiðbeiningar DVV á síðunni um skráningu erlendra borgara í þjóðskrá.

Ríkisborgari ESB-/EES-lands eða Sviss, eða fjölskyldumeðlimur slíks ríkisborgara

Ef þú ert ríkisborgari ESB- eða EES-lands eða Sviss þarft þú ekki dvalarleyfi til að dvelja í Finnlandi. Ætlir þú að dvelja lengur en 90 daga í Finnlandi þarft þú að skrá upplýsingar um dvalarrétt þinn hjá Enter Finland, sem er þjónustuvefur finnsku stofnunarinnar um málefni innflytjenda, eða með því að fylla út og skila inn umsókn á pappír. Þú þarft líka að skrá upplýsingar um dvalarrétt þinn ef þú ert fjölskyldumeðlimur ríkisborgara ESB-lands. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Finnsku stofnunarinnar um málefni innflytjenda (Maahanmuuttovirasto).

Kynntu þér upplýsingar um skilyrði og umsóknarferli varðandi kennitölu og búsetusveitarfélag á síðum DVV um skráningu erlendra borgara í þjóðskrá Finnlands. 

Ríkisborgarar annarra landa

Erlendir ríkisborgarar þurfa ekki að tilkynna um dvöl í Finnlandi ef hún varir skemur en í 90 daga. Ef þú kemur frá landi sem krefst vegabréfsáritunar þarft þú samt sem áður að fá vegabréfsáritun til að ferðast til Finnlands. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Finnsku stofnunarinnar um málefni innflytjenda (Maahanmuuttovirasto).

Ef þú ert ekki borgari norræns lands, ESB-/EES-lands eða Sviss þarft þú alla jafna að sækja um dvalarleyfi ef þú hyggst flytja til Finnlands. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Finnsku stofnunarinnar um málefni innflytjenda (Maahanmuuttovirasto). 

Kynntu þér upplýsingar um skilyrði og umsóknarferli varðandi kennitölu og búsetusveitarfélag á síðum DVV um skráningu erlendra borgara í þjóðskrá Finnlands. 

Ef þú ert undir lögaldri og flytur til Finnlands án forsjáraðila

Ef þú ert undir lögaldri og flytur til Finnlands eiga sömu reglur við um þig og um fullorðna. Sért þú undir 15 ára aldri á DVV ávallt að ræða við forsjáraðila þinn eða forsvarsaðila. Þess vegna ættir þú að hafa meðferðis skriflega greinargerð, undirritaða af forsjáraðilum, þar sem fram kemur að þú sért að flytja til Finnlands.

Kynntu þér upplýsingar á síðum DVV um skráningu erlendra borgara í þjóðskrá Finnlands. 

Búsetusveitarfélag

Öll sem skráð eru með fasta búsetu í Finnlandi eiga þar sitt búsetusveitarfélag. Skattlagning einstaklinga, framboð á heilbrigðisþjónustu og fleira ræðst meðal annars af búsetusveitarfélagi. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn.

Uppýsingar fyrir fólk sem flytur til Álandseyja um svonefndan heimabyggðarrétt og um undanþágu frá herþjónustu eru á síðunni Skráning í þjóðskrá á Álandseyjum.

Ef þú býrð í fleiri en einu landi samtímis

Samkvæmt Norðurlandasamningnum um almannaskráningu getur hver íbúi á Norðurlöndum aðeins verið skráður í þjóðskrá eins norræns lands í einu. Ef þú býrð eða ert skráð/ur til heimilis í tveimur norrænum ríkjum samtímis, þá ákveður viðeigandi yfirvald í landinu sem flutt er til hvort beri að skrá búsetu þína í því landi eða ekki.

Almenna reglan er sú að það land sem viðkomandi einstaklingur hefur sterk tengsl til, svo sem vegna fjölskyldu, fasteigna eða vinnustaðar, telst vera búsetuland hans. Skráningaryfirvöld landsins sem flutt er til taka ákvörðun um búsetu einstaklings þegar hann hefur mætt á þarlenda skráningarskrifstofu og skráð sig

Upplýsingar um almannatryggingar ef þú býrð í fleiri en einu landi samtímis eru á síðunni „Hvar átt þú aðild að almannatryggingum?“.

Þarft þú að tilkynna brottfararlandinu um flutninginn?

Það veltur á reglum þess lands sem flutt er frá hvort þú átt líka að tilkynna brottfararlandinu um flutning þinn til Finnlands. Í Svíþjóð og Danmörku á einnig að tilkynna þjóðskrá í brottfararlandinu um flutning til Finnlands. Nánari upplýsingar eru á síðunum hér fyrir neðan.

Ef þú flytur innan Finnlands

Þegar þú flytur innan Finnlands þarft þú alltaf að tilkynna það stofnuninni um stafræna væðingu og lýðfræðigögn. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn.

Þegar flutt er innan Finnlands er einnig mikilvægt að tilkynna það þjóðskrá í landinu sem flutt var frá, þar sem ekki er víst að upplýsingar um flutninginn berist sjálfkrafa til annarra landa. Þegar þú skráir nýtt heimilisfang þitt í Finnlandi skaltu gæta þess að þjóðskrá í fyrrum búsetulandi þínu fái einnig upplýsingar um nýja heimilisfangið. Nánari upplýsingar um reglur í mismunandi löndum eru á síðu fyrir viðkomandi land.

Ef þú flytur frá Finnlandi til annars lands

Ef þú flytur frá Finnlandi til annars norræns lands skaltu tilkynna flutninginn viðeigandi yfirvöldum í Finnlandi og í því landi sem þú flytur til. 

Í Finnlandi þarft þú að tilkynna flutning til stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV) og til Kela. Nánari upplýsingar eru á vefsvæðum DVV og Kela.

Viðeigandi yfirvöld í landinu sem þú flytur til ákveða hvernig flutningurinn verður skráður. Nánari upplýsingar eru á síðum um skráningu í þjóðskrá í mismunandi löndum.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.