Leiðbeiningar: fjarvinna í Danmörku eða fyrir danskan vinnuveitanda

Ljósmyndari
Chris Montgomery/Unsplash
Fjarvinna verður æ algengari en ef þú vinnur fyrir vinnuveitanda í öðru landi þarftu að hafa ýmislegt í huga. Hvar áttu að greiða skatt? Í hvaða landi ertu með almannatryggingu? Reglur hvors landsins eiga við varðandi vinnuumhverfi? Og svo framvegis.

Það telst „fjarvinna“ þegar þú innir vinnuna af hendi annars staðar en á raunverulegum vinnustað þínum – t.d. heima hjá þér. Þótt norrænu löndin séu eitt samtengt svæði þarftu að hafa ýmislegt í huga ef þú vinnur fjarvinnu fyrir vinnuveitanda í öðru landi. Hafðu í huga að reglur þess lands þar sem þú innir vinnuna af hendi kunna að vera frábrugðnar reglum landsins þar sem vinnuveitandinn er og stundum kunna þessar reglur að vera flóknar. 

Skriflegur samningur um fyrirkomulag fjarvinnu

Þú ættir að gera skriflegan samning við vinnuveitanda þinn um fjarvinnu sem unnin er í öðru landi.  

Þú ættir líka að semja við vinnuveitandann um vinnutíma, eftirlit með árangri, verklagi í tengslum við veikindi og gagnaöryggi. Einnig þarftu að ganga úr skugga um hvar þú ert með almannatryggingar og hvernig beri að skipta hugsanlegum aukakostnaði vegna fjarvinnunnar. Ráðningarfyrirkomulag getur verið með ýmsum hætti og því getur þörfin á samningi verið misjöfn.

Vinnuveitandi þinn kann að setja því skorður að hve miklu leyti þú vinnur í fjarvinnu og hvar þú gerir það. Gott er að hafa í huga að ekki allir vinnuveitendur leyfa fjarvinnu frá útlöndum þótt þeir leyfi fjarvinnu innan landsins. Það getur til dæmis vegna meiri kostnaðar, vafa um hvernig ábyrgð skiptist eða möguleika vinnuveitandans á að uppfylla lagaleg skilyrði.

Skattur vegna fjarvinnu í öðru landi

Skattamál kunna að vera flókin þegar unnið er í fjarvinnu í öðru landi. Skattareglur eru mismunandi á milli landanna og mikilvægt er að þú áttir þig á því hvar þú átt að greiða skatt af tekjum þínum. Þú skalt þess vegna ávallt hafa samband við skattayfirvöld í báðum löndum ef þú vinnur fjarvinnu í öðru landi.

Almenna reglan er sú að maður sé skattskyldur í því landi þar sem maður í raun innir vinnuna af hendi. Ef þú vinnur sitt á hvað í tveimur löndum spilar fleira inn í það hvar þér ber að greiða skatt.

Danmörk og Svíþjóð hafa gert með sér „Eyrarsundssamninginn“ sem meðal annars kveður á um sérstakar reglur varðandi sköttun fjarvinnu á milli Danmerkur og Svíþjóðar.

Nánar má lesa um Eyrarsundssamninginn hjá Øresunddirekt auk þess sem nálgast má frekari upplýsingar um skattamál á Norðurlöndum hjá Nordisk eTax-vefgáttinni sem rekin er í samstarfi skattyfirvalda á Norðurlöndunum.

Almannatryggingar vegna fjarvinnu í öðru landi

Ef þú vinnur að öllu leyti eða hluta til í fjarvinnu fyrir vinnuveitanda erlendis þarftu að athuga hvar þú nýtur almannatrygginga. Það skiptir máli varðandi reglur um atvinnuleysistryggingar, lífeyrisgreiðslur, fjölskyldubætur og fleira, sem og hvar vinnuveitandinn á að greiða félagsleg gjöld. 

Meginreglan er sú að einstaklingur er tryggður af almannatryggingum í því landi þar sem hann í raun innir vinnuna af hendi. Ef þú vinnur eingöngu í Danmörku er almenna reglan sú að þú njótir almannatrygginga í Danmörku. Því á hinn erlendi vinnuveitandi að greiða félagsleg gjöld til Danmerkur. 

Ef þú vinnur sitt á hvað í landinu sem þú býrð í og á vinnustað þínum í landi innan ESB/EES eða í Sviss er almenna reglan sú að þú njótir almannatrygginga í landinu sem þú býrð í ef þú vinnur þar í meira en 25% tímans. Á þessu eru þó undantekningar:

  • Ef þú ert opinber starfsmaður nýtur þú almannatrygginga í landinu sem stofnunin tilheyrir. Ef þú ert opinber starfsmaður í einu landi og vinnur í einkageiranum í öðru nýturðu almannatrygginga í því landi þar sem þú ert opinber starfsmaður.
  • Á milli Svíþjóðar og Danmerkur máttu vinna allt að 50% heima og njóta áfram almannatrygginga í vinnulandinu, nema þú vinnir fyrir fleiri en einn vinnuveitanda.

Hafðu samband við almannatryggingar í báðum löndum til að ganga úr skugga um hvað á við í þínu tilviki.

Vinnuslysatrygging þegar unnið er fjarvinnu erlendis

Vinnuslysatrygging gildir alla jafna aðeins þegar unnið er í Danmörku.

Vinnuslysatryggingin er þó hluti af almannatryggingum og ef þú vinnur í Danmörku og stundum heima hjá þér í öðru ESB-/EES-landi eða Sviss gilda sömu reglur og lýst er að ofan undir „Almannatryggingar“.

Ef þú vinnur í Danmörku en vinnur heiman frá þér í landi utan ESB/EES eða Sviss sem Danmörk hefur ekki gert samninga við nýtur þú ekki danskrar vinnuslysatryggingar á meðan þú vinnur heima. Þú eða vinnuveitandi þinn þurfa þá að hafa samband við almannatryggingar í heimalandi þínu til að fá upplýsingar um hvort þú skulir njóta almannatrygginga þar á meðan þú vinnur heima eða kaupa einkatryggingu sem nær yfir vinnutengd slys eða veikindi í heimalandi þínu.

Reglur um vinnuumhverfi við fjarvinnu í Danmörku

Í Danmörku gilda vinnuverndarlög einnig þegar unnið er heima. Vinnuveitandi ber ábyrgð á því vinnuumhverfi sé heilsusamlegt og öruggt þegar unnið er heima. Meðal annars ber vinnuveitandi ábyrgð á því að tryggja að heimavinna með skjá sé með öruggum og heilsusamlegum hætti. Sérstakar kröfur eru gerðar varðandi vinnustað, skjá og tækjabúnað ef vinna við skjá nær ákveðnu umfangi. Vinnuverndarlög sem kveða á um andlegt vinnuumhverfi eiga einnig við þegar unnið er að heiman.

Dönsk vinnuverndarlög eiga aðeins við þegar unnið er innan Danmerkur. Ef unnið er í fjarvinnu frá öðru landi ber vinnuveitanda að fylgja þeim vinnuverndarlögum sem gilda um vinnu að heiman í viðkomandi landi.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.