Lyf og niðurgreiðsla lyfja á Álandseyjum
Einstaklingar sem eru búsettir í Finnlandi og á Álandseyjum geta fengið niðurgreiðslu FPA fyrir lyfjakostnaði, klínískum fæðubótarefnum og smyrslum sem fengin eru með lyfseðli til að meðhöndla sjúkdóm. Einnig kann einstaklingur að eiga rétt á niðurgreiðslu ef hann á rétt á heilbrigðisþjónustu í Finnlandi samkvæmt ESB-lögum eða alþjóðasamningi.
Á Álandseyjum gilda finnskar reglur um lyf og niðurgreiðslu lyfja. Upplýsingar um m.a. rétt á niðurgreiðslu lyfja, hvað á að gera vegna erlends lyfseðils og reglur um ferðalög með lyf er að finna á síðu Info Norden, „Lyf og endurgreiðslur lyfjakostnaðar í Finnlandi“.
Greiðsluþak
Greiðsluþak er á kostnaði fyrir heilbrigðisþjónustu á einu almanaksári. Þegar þakinu er náð þarf ekki að greiða meiri kostnað sem fellur undir greiðsluþakið það sem eftir er af árinu. Sjúklingar bera sjálfir ábyrgð á að halda utan um eigin kostnað en heilbrigðisþjónusta Álandseyja (ÅHS) getur veitt aðstoð við það.
Allir sjúklingar sem eiga rétt á heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum falla undir almenna 450 evra greiðsluþakið. Fyrir einstaklinga með lágar skattskyldar tekjur, börn og ungmenni og einstaklinga sem fá félagslega aðstoð er greiðsluþakið lægra eða þurfa ekki að greiða neinn kostnað.Nánari upplýsingar um greiðsluþakið eru í sjúklingahandbók á vefsíðu ÅHS.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um lyf og niðurgreiðslu lyfja í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.