Réttindi neytenda Í Danmörku

Hér er að finna upplýsingar um réttindi neytenda í Danmörku og þegar keyptar eru vörur frá dönskum netverslunum.

Sem neytandi nýturðu ýmissa réttinda þegar þú kaupir vörur í Danmörku, bæði í venjulegum verslunum og dönskum netverslunum.

Réttindi þín þegar þú kaupir vörur í hefðbundnum verslunum í Danmörku

Þegar þú kaupir vöru í verslun í Danmörku hefurðu ákveðin réttindi.

  • Kvörtunarfrestur er tvö ár. Það þýðir að kaupandi vöru hefur tveggja ára frest til að senda kvörtun til verslunar út af gallaðri vöru. Það á við um galla og bresti sem voru til staðar þegar varan var keypt.
  • Þú átt rétt á að fá gert við vöruna eða fá nýja vöru reynist hún gölluð. Ef það tekst ekki eftir nokkrar tilraunir áttu rétt á endurgreiðslu eða afslætti.
  • Þú átt ekki sjálfkrafa rétt á að hætta við kaup þegar vara er keypt í hefðbundinni verslun. Það er undir versluninni komið hvort þú getur fengið endurgreitt eða skipt vörunni.

Nánari upplýsingar má finna á forbrug.dk.

Réttindi þín þegar þú kaupir vörur í dönskum netverslunum

Þegar þú kaupir vöru í danskri netverslun hefurðu ákveðin réttindi.

  • Kvörtunarfrestur er tvö ár. Það þýðir að kaupandi vöru hefur tveggja ára frest til að senda kvörtun til verslunar út af gallaðri vöru. Það á við um galla og bresti sem voru til staðar þegar varan var keypt.
  • Þú átt rétt á að fá gert við vöruna eða fá nýja vöru reynist hún gölluð. Ef það tekst ekki eftir nokkrar tilraunir áttu rétt á endurgreiðslu eða afslætti.
  • Þú hefur 14 daga til að hætta við kaupin, frá deginum sem þú tekur við vörunni.
  • Þú átt rétt á fullri endurgreiðslu ef þú skilar vörunni innan skilafrestsins.
  • Þú átt rétt á að fá upplýsingar um alla skilmála áður en kaupin eru framkvæmd.

Þetta á einnig við ef þú sem neytandi í öðru norrænu landi kaupir vöru af netverslun sem skráð er í Danmörku.

Neytendasamtök í Danmörku

Leiki þér forvitni á að vita meira um réttindi neytenda í Danmörku geturðu leitað til Forbrugerrådet Tænk, meðal annars varðandi neytendalög, skilarétt og markaðssetningu. Þar færðu einnig ráðgjöf um réttindi neytenda.

Hjá Forbruger Europa í Danmörku geturðu fengið ráð og aðstoð þegar þú ferðast og verslar innan ESB. Það á t.d. við um flugferðir, netverslun og áskriftir.

Samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.