Réttindi og skyldur vinnandi fólks í Finnlandi

Hér er sagt frá þeim réttindum og skyldum sem vinnandi fólk hefur í Finnlandi. Einnig er sagt frá því hvert hægt er að snúa sér ef vandamál koma upp.

Ef þú vinnur í Finnlandi hefur þú ýmis réttindi og hefur einnig skyldum að gegna. Takir þú eftir einhverju sem betur mætti fara á vinnustað þínum skaltu fyrst ræða málin við yfirmann þinn. Þú getur líka leitað ráða hjá trúnaðarmanni stéttarfélags á vinnustaðnum, hjá öryggisfulltrúa starfsmanna eða yfirmanni vinnuverndarmála sem skipaður hefur verið af vinnuveitanda.

Upplýsingar um stéttarfélög í Finnlandi eru á síðunni Stéttarfélög í Finnlandi.

Ráðningarsamningur í Finnlandi

Þegar þú færð vinnu þarft þú að gera ráðningarsamning við vinnuveitanda þinn. Gott er að hafa ráðningarsamning skriflegan, þar sem það þjónar hagsmunum beggja aðila.

Í ráðningarsamningi eru tiltekin öll þau atriði sem varða þitt starf á vinnustaðnum. Slík atriði geta verið vinnutími, lengd ráðningar, laun, hugsanlegar viðbætur við laun og útborgunardagur launa. Að auki þarf það að koma fram í ráðningarsamningi ef um reynslutíma er að ræða, og hvaða kjarasamningi starfskjörin skuli fylgja.

Ef ekki er gerður skriflegur ráðningarsamningur þarf vinnuveitandi að afhenda þér skriflega greinargerð þar sem helstu kjör starfsins koma fram. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku vinnuverndarstofnunarinnar.

Starfsvottorð í Finnlandi

Þegar ráðningarsambandinu lýkur getur þú beðið vinnuveitanda þinn um svokallað starfsvottorð (fi. työtodistus). Á starfsvottorði þarf að koma fram hversu lengi þú starfaðir á vinnustaðnum og hvað fólst í starfinu. Ef þú óskar eftir því kemur þar einnig fram ástæða þess að ráðningarsambandinu lauk, svo og mat á hæfni þinni og framferði í starfi. Ef þú færð ekki starfsvottorð frá vinnuveitanda þrátt fyrir að hafa beðið um það getur þú leitað aðstoðar hjá finnsku vinnuverndarstofnuninni. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku vinnuverndarstofnunarinnar.

Réttindi og skyldur vinnandi fólks í Finnlandi

Hér fyrir neðan segir frá þeim réttindum og skyldum sem vinnandi fólk hefur í Finnlandi.

Vinnandi fólk á rétt á því

  • að laun þess og önnur starfskjör séu samkvæmt gildandi kjarasamningum
  • að vinnutími þess samræmist lögum og kjarasamningum
  • að eiga aðild að stéttarfélagi 
  • að vera í heilnæmu og öruggu starfsumhverfi
  • að fá fæðingar- og fjölskylduorlof lögum samkvæmt
  • að hafa aðgang að heilsugæslu og vinnuvernd á vinnustaðnum
  • að njóta jafnræðis og jafnréttis á vinnustaðnum
  • að vera sett inn í starfið og fá kynningu á öruggum starfsháttum
  • að fá launa- og ráðningarskilmála sína skriflega

Vinnandi fólki ber skylda til þess

  • að sinna vinnu sinni af vandvirkni
  • að fylgja fyrir fram umsömdum vinnutíma
  • að fylgja fyrirmælum vinnuveitanda
  • að sneiða hjá starfsemi sem er í samkeppni við vinnuveitandann
  • að ljóstra ekki upp um viðskipta- og atvinnuleyndarmál
  • að hafa hagsmuni vinnuveitanda til hliðsjónar í starfi sínu
  • að tilkynna yfirmanni strax um það ef hættu verður vart á vinnustaðnum

Nánari upplýsingar um réttindi og skyldur vinnandi fólks eru á vefsvæðum finnsku vinnuverndarstofnunarinnar og Vinnumarkaðstorgsins.

Aðstoð í vandasömum aðstæðum

Ef þú lendir upp á kant við vinnuveitanda þinn getur þú leitað ráða hjá trúnaðarmanni stéttarfélags á vinnustaðnum, hjá öryggisfulltrúa starfsmanna eða yfirmanni vinnuverndarmála sem skipaður hefur verið af vinnuveitanda. Ef enginn trúnaðarmaður er á vinnustaðnum getur þú leitað til stéttarfélags þíns, ef þú átt aðild að stéttarfélagi. SAK, landssamband finnskra stéttafélaga, veitir líka ráðgjafarþjónustu án endurgjalds sem er sérstaklega sniðin að þörfum ungs fólks og fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði. Ef ekki reynist unnt að leysa úr málinu á vinnustaðnum getur þú óskað eftir aðstoð frá vinnuverndaryfirvöldum í landinu.

Ef þér er mismunað á vinnustað þínum getur þú rætt málið við vinnuveitanda þinn eða við vinnuverndarfulltrúa eða trúnaðarmann á vinnustaðnum. Náir þú ekki að leysa málið í samráði við vinnuveitanda getur þú haft samband við vinnuverndaryfirvöld, umboðsmann gegn mismunun eða umboðsmann jafnréttismála.

Nánari upplýsingar um mismunun á vinnumarkaði eru á vefsvæði finnsku vinnuverndarstofnunarinnar.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.