Sænskur almennur lífeyrir
Í Svíþjóð eru ýmsar tegundir lífeyris. Á þessari síðu er fjallað um almennan lífeyri (allmän pension). Flestir sem starfa eða hafa starfað í Svíþjóð eiga rétt á vinnumarkaðslífeyri frá atvinnurekanda og sumir eru þar að auki með eigin lífeyrissparnað.
Ríkið greiðir almennan lífeyri og annast Pensionsmyndigheten í Svíþjóð greiðslur hans. Almennur lífeyrir getur samanstaðið af tekjutengdum lífeyri (indkomstpension), skyldubundnum viðbótarlífeyri (præmiepension), lágmarkslífeyri (garantipension), tekjutengdum viðbótarlífeyri (inkomstpensionstillägg), húsnæðisstyrk (bostadstillägg), framfærslustyrk aldraðra (äldreförsörjningsstöd) og aðstandandalífeyri (efterlevandepension).
Þú getur lesið um aðrar tegundir sænsks lífeyris á síðunni „Lífeyriskerfið í Svíþjóð“.
Átt þú rétt á almennum sænskum lífeyri?
Allir sem hafa starfað eða búið í Svíþjóð fá almennan lífeyri. Lífeyrir miðast við allar tekjur sem greiddur er skattur af. Þetta á einnig við um atvinnuleysisbætur, veikinda- eða virknibætur og fæðingarorlofsgreiðslur.
Árlega eru dregin 18,5 prósent frá lífeyrisskyldum tekjum, það er launum og öðrum skattskyldum greiðslum sem nema allt að 7,5 prósentum af tekjugrunni almenns lífeyris. Sænska lífeyrisstofnunin reiknar út tekjugrunninn en stjórnvöld ákveða upphæð hans á hverju ári. Upphæðin er meðal annars til viðmiðunar við útreikning á hámarkstekjum sem veita lífeyri. Meginhlutinn, 16 prósent, fer í tekjutengda lífeyrinn. Minnihlutinn sem eftir stendur, 2,5 prósent, fer í skyldubundna viðbótarlífeyrinn.
Einstaklingar sem hafa lágar eða engar tekjur og hafa verið búsettir í Svíþjóð geta að auki átt rétt á að fá lágmarkslífeyri.
Sjálfstætt starfandi
Sjálfstætt starfandi bera sjálfir ábyrgð á lífeyrissparnaði sínum. Ef þú vilt ávinna þér sambærilegan lífeyri og ef þú værir launamaður þarftu að taka út laun eða hagnað og greiða af því skatta og gjöld. Eins þarftu að bæta upp vinnumarkaðslífeyrinn með eigin sparnaði.
Sjáðu hvað þú færð háan lífeyri
Ef þú ert með rafræn skilríki á borð við BankID eða Freja eID+ getur þú skráð þig inn á vefinn pensionsmyndigheten.se og reiknað út hvað þú færð háan lífeyri á mánuði þegar þú nærð lífeyrisaldri. Spáin sýnir almennan lífeyri, vinnumarkaðslífeyri og viðbótarlífeyri ef slíkur sparnaður er fyrir hendi. Spáin nær einungis til lífeyrisréttinda sem hafa áunnist í Svíþjóð.
Þú færð einnig ársskýrslu frá Pensionsmyndigheten og öðrum lífeyrissjóðum sem sýna árlegan lífeyrissparnað þinn. Ef þú ert ekki viss um hvort þú eigir vinnumarkaðslífeyri skaltu hafa samband við vinnustaðinn þinn.
Reiknaðu sænskan almennan lífeyri út ef þú hefur búið og starfað í fleiri en einu landi
Tekjur í Svíþjóð eru aðeins lagðar til grundvallar við útreikning á almennum sænskum lífeyri. Lágmarkslífeyrir getur ráðist af bæði því í hve mörg ár þú hefur stafað eða búið í öðru ESB-/EES-landi og lífeyrinum sem þú færð frá því landi eða frá landi utan ESB/EES.
Greiðslur almenns lífeyris
Í Svíþjóð er enginn ákveðinn lífeyrisaldur. Frá árinu 2026 hefur viðmiðunaraldur verið tekinn upp fyrir almennan lífeyri. Viðmiðunaraldurinn segir fyrir um hvenær þú getur fyrst tekið út almennan lífeyri eða lágmarkslífeyri, tekjutengdan viðbótarlífeyri eða húsnæðisstyrk.
Á vef Pensionsmyndigheten má lesa nánar um viðmiðunaraldurinn og hvaða lífeyrisaldur gildir um þig og þína kynslóð.
Það hvenær þú byrjar að taka út lífeyri hefur mikil áhrif á það hve mikinn lífeyri þú færð. Þú átt rétt á að vinna til 69 ára aldurs. Ef þú vilt vinna lengur en það þarf vinnuveitandi þinn að samþykkja það.
Einstaklingur sem er búsettur í Svíþjóð en hefur starfað í öðrum löndum getur sótt um lífeyri í þeim löndum gegnum pensionsmyndigheten.se eða með eyðublaði. Einstaklingar sem hafa starfað í fleiri löndum ættu að sækja um sex mánuðum áður en þeir hyggjast taka við fyrstu lífeyrisgreiðslunni. Einstaklingar sem eingöngu hafa starfað í Svíþjóð þurfa að sækja um þremur mánuðum áður en þeir hyggjast taka við fyrstu greiðslunni.
Almennur lífeyrir er greiddur til æviloka.
Einstaklingur sem er búsettur í norrænu ríkjunum eða hefur verið almannatryggður gegnum starf í því landi sem hann er nú búsettur í, skal hafa samband við lífeyrisstjórnvaldið í því landi sem við á til þess að sækja um lífeyri frá Svíþjóð.
Erlenda lífeyrisstjórnvaldið sendir umsóknina til Pensionsmyndigheten í Svíþjóð þar sem réttindi viðkomandi eru könnuð og almennur lífeyrir greiddur. Málsmeðferðartími frá því að umsókn berst til Pensionsmyndigheten þar til viðkomandi fær fyrstu lífeyrisgreiðsluna er yfirleitt um fjórir mánuðir en í einhverjum tilvikum getur þetta tekið sex mánuði eða meira.
Hægt er að flytja allan lífeyri sem hefur áunnist í Svíþjóð úr landi – bæði almennan lífeyri og mögulegan vinnumarkaðslífeyri.
Þú gætir átt rétt á sænskum lágmarkslífeyri ef þú hefur litlar eða engar atvinnutekjur og býrð í Svíþjóð. Ef þú flytur til annars lands missir þú rétt þinn til lágmarkslífeyris og hættir að fá hann greiddan út.
Mikilvægt er að tilkynna flutninga til Pensionsmyndigheten.
Má taka með sér almennan lífeyri til annars norræns lands?
Hægt er að flytja allan lífeyri sem hefur áunnist í Svíþjóð úr landi – bæði almennan lífeyri og mögulegan vinnumarkaðslífeyri.
Þú gætir átt rétt á sænskum lágmarkslífeyri ef þú hefur litlar eða engar atvinnutekjur og býrð í Svíþjóð. Ef þú flytur til annars lands missir þú rétt þinn til lágmarkslífeyris og hættir að fá hann greiddan út.
Hvernig er almennur lífeyrir greiddur við andlát?
Þegar náinn aðstandandi fellur frá er hægt að fá fjárhagsaðstoð í formi aðstandandalífeyris. Aðstandandalífeyrir er hluti af almennum lífeyri og samanstendur af barnalífeyri, breytingalífeyri og ekkjulífeyri. Réttindi viðkomandi velta á því hvort hann er undir átján ára aldri eða maki hins látna.
Sænskar dánarbætur miðast við aðstæður í Svíþjóð og eru hugsaðar sem fjárhagsleg trygging til að greiða þá framfærslu sem hinn látna/hin látna tók þátt í. Forsenda þess að eiga rétt á sænskum dánarbótum er að hinn látni/hin látna hafi einhvern tíma starfað eða búið í Svíþjóð.
Aðstandandalífeyrir er eingöngu byggður á lífeyrisgrunni sem hinn látni/hin látna ávann sér í Svíþjóð. Ekki er um að ræða fasta upphæð sem allir eiga rétt á. Ef lífeyrisréttindi hins látna/hinnar látnu voru lítil í Svíþjóð eru dánarbætur lágar að sama skapi. Þá skiptir ekki máli hvort eftirlifandi aðstandandi fær lágan eða engan lífeyri í landinu sem hann/hún býr í.
Hvar á að greiða skatt af sænskum almennum lífeyri sem einstaklingur sem er búsettur erlendis fær greiddan?
Einstaklingur sem á heima erlendis en fær lífeyri frá Svíþjóð borgar yfirleitt sérstakan tekjuskatt fyrir fólk sem er búsett erlendis (SINK). SINK-skattur er annað hvort 0% eða 25% af tekjum viðkomandi. Skatturinn reiknast af mánaðarlegum greiðslum eftir frítekjumark. Aðeins er greiddur skattur af þeim hluta lífeyrisins sem er yfir frítekjumörkunum.
Hvaða reglur gilda um eldri borgara á vinnumarkaði?
Í Svíþjóð er enginn ákveðinn lífeyrisaldur. Frá árinu 2026 hefur viðmiðunaraldur verið tekinn upp fyrir almennan lífeyri. Viðmiðunaraldurinn segir fyrir um hvenær þú getur fyrst tekið út almennan lífeyri. Hægt er að taka út almennan lífeyri að hluta til eða allan: 25 prósent, 50 prósent, 75 prósent eða 100 prósent. Þá er hægt að taka út lífeyri og í vinnu samtímis og ef aðstæður breytast og viðkomandi óskar eftir því að byrja aftur að vinna fulla vinnu er hægt að aðlaga töku lífeyris. Aðrar reglur geta gilt um vinnumarkaðslífeyrinn.
Þú átt rétt á að vinna til 69 ára aldurs. Ef þú vilt vinna lengur en það þarf vinnuveitandi þinn að samþykkja það.
Skattar lækka ef taka lífeyris hefst seinna. Einstaklingur sem heldur áfram að vinna í stað þess að hefja töku lífeyris greiðir lægri skatta en hann gerði áður. Þetta gildir frá og með ári viðmiðunaraldus þíns.
Hvert er hægt að snúa sér með spurningar?
Pensionsmyndigheten heldur upplýsingafundi á sænsku og ensku, þar sem gefnar eru upplýsingar um lífeyriskerfið í Svíþjóð og tækifæri gefst til að spyrja spurninga.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.