Samþætting þverlægra sjónarmiða í Norrænu ráðherranefndinni
Löng hefð er fyrir því hjá Norrænu ráðherranefndinni að vinna að samþættingu þessara þriggja þverlægu sjónarmiða. Mikilvægt er að vinna að þessum málaflokkum til þess að uppfylla framtíðarsýn okkar fyrir árið 2030 og þess vegna vinnur Norrænu ráðherranefndin markvisst að þeim þvert á fagsvið með því að hafa þessi þrjú þverlægu sjónarmið til hliðsjónar við verkefna- og áætlunarstarf.
Hvað felur samþættingin í sér?
Samþætta á þrjú þverlæg sjónarmið í störf Norrænu ráðherranefndarinnar með því að taka mið af þeim við verkefna- og áætlunarvinnu. Taka ber mið af þessum sjónarmiðum við mótun, framkvæmd og mat á norrænum verkefnum þegar það er talið eiga við.
Við mótun verkefna og áætlana, nánar tiltekið þegar verkefna- og áætlunalýsingu Norrænu ráðherranefndarinnar er fyllt út, er þetta gert með því að ígrunda spurningum sem varða þverlægu sjónarhornin og svara þeim. Það felur í sér að spyrja sig hvort starfið hafi áhrif á umhverfi og loftslag, jafnrétti milli kvenna og karla eða börn og ungmenni, og hvort hægt sé að gera breytingar á áætlun og framkvæmd til að draga úr neikvæðum áhrifum og efla jákvæð.
Hvers vegna skiptir samþætting máli?
Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar hefur áhrif á líf fólks á Norðurlöndum. Við innleiðum aðgerðir sem auðvelda daglegt líf íbúa Norðurlanda, við leiðum saman norræna hagaðila svo þeir læri hver af öðrum og sköpum þekkingu og lausnir sem styðja við þróun á Norðurlöndum. Þess vegna skiptir máli að tryggja að starfsemi okkar sé sjálfbær, á jafnréttisforsendum, inngildandi og aðgengileg fulltrúum ólíkra hópa.
Norræna ráðherranefndin stefnir hátt í samþættingu og styðst þar við skuldbindingar Norðurlanda varðandi heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun, kvennasáttmála SÞ og barnasáttmála SÞ. Metnaðurinn birtist einnig í því að Norræna ráðherranefndin er meðal fyrstu stofnana sem draga þessi þrjú þverlægu sjónarmið saman í eina stefnumótun.
Hvar finn ég upplýsingar um samþættinguna?
Leiðarvísirinn er fyrir starfsfólk eða samstarfsaðila skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar eða stofnana hennar. Leiðarvísirinn inniheldur ítarlega lýsingu á þverlægu sjónarmiðunum þremur, ráð varðandi greiningu á tengingum verkefnisins eða áætlunarinnar við sjónarmiðin og leiðbeiningar um hvernig á að fylla þetta út í verkefnis- eða áætunarlýsingunni.
Til að styðja starfið hefur verið þróað sérstakt áhrifamatstól sniðið að þörfum Norrænu ráðherranefndarinnar. Áhrifamat er kerfisbundið mat sem ætlað er að greina blindbletti, tækifæri sem gleymist að líta til og neikvæð áhrif tiltekinnar aðgerðar. Tólið hefur fyrst og fremst fræðslugildi og hvetur til ígrundunar og nýtist best í samstarfi þegar spurningum er svarað í samtali milli samstarfsfélaga.
Þetta er leiðarvísir þinn um hvernig farið er að því að halda sjálfbærari og aðgengilegri fundi, ráðstefnur og viðburði, jafnt á staðnum sem á netinu. Með 10 viðmiðunarreglum og fjölda hagnýtra ráða á 14 lykilsviðum bendir leiðarvísirinn á þau svið þar sem hægt er að taka umhverfisvænar og inngildandi ákvarðanir.
Því markmiði að flétta sjónarmið réttinda barna og málefni ungmenna í auknum mæli inn í starfið fylgir einnig sú ábyrgð að tryggja að starfið sé unnið í anda nokkurra viðmiðunarreglna, með sameiginlegri lágmarksaðkomu barna og ungmenna og umfram allt með hætti sem verndar öryggi barna. Þetta rit á erindi í öllum þeim tilvikum þegar haft er samband við börn og ungmenni eða þegar þau taka þátt í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar.