Norðurlönd og Danmörk leiða Evrópu saman um réttindi hinsegin fólks

17.05.26 | Fréttir
Ljósmyndari
Andreas Omvik
Þann 19. maí stendur Norræna ráðherranefndin ásamt Danmörku fyrir ráðstefnunni IDAHOT+ Forum í Kaupmannahöfn. IDAHOT, alþjóðadagurinn gegn hómófóbíu, transfóbíu, bífóbíu og intersexfóbíu, er alþjóðlegur baráttudagur sem ætlað er að vekja athygli á réttindum hinsegin fólks um allan heim.

IDAHOT+ Forum í Kaupmannahöfn í ár leggur sérstaka áherslu á réttaröryggi, inngildingu og vernd hinsegin fólks, sem og hvernig Evrópulönd geta unnið saman að því að vinna gegn mismunun og hatursglæpum. Ráðstefnan er hluti af formennsku Danmerkur í Norrænu ráðherranefndinni og er haldin í samstarfi meðal annars við Evrópuráðið.

Norðurlönd setja réttindi hinsegin fólks á dagskrá á alþjóðlegavettvangi

Norræna ráðherranefndin tekur þátt í IDAHOT+ Forum í ár meðal annars með átaki jafnréttisráðherranna, Pushing for Progress, sem er sameiginleg norræn yfirlýsing um að efla starf að jafnrétti, réttindum hinsegin fólks og inngildingu, bæði á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, undirstrikar mikilvægi norræns samstarfs á tímum þegar lýðræði og mannréttindi eiga undir högg að sækja víða í Evrópu.

„IDAHOT+ Forum sýnir hversu mikilvægt það er að við stöndum saman um að verja og efla réttindi hinsegin fólks. Með Pushing for Progress hafa norrænu jafnréttisráðherrarnir skuldbundið sig til að vera öflugir málsvarar jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda, bæði á Norðurlöndum og annars staðar í heiminum,“ segir Ellemann.

 

Mikilvægt að standa vörð um gildin

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Íslands, sem tekur þátt í fundinum, bendir á að hann fari fram á mikilvægum tímamótum.

„Fundurinn minnir okkur á að jafnrétti og frelsi eru aldrei sjálfgefin. Við verðum að standa vörð um gildin okkar og efla samstarf þvert á landamæri. Pushing for Progress veitir okkur sterkan grundvöll til að stuðla að jafnrétti, öryggi og jöfnum réttindum og tækifærum fyrir öll,“ segir Hanna Katrín.

 

Markmiðið er sameiginleg yfirlýsing

Á IDAHOT+ Forum 2026 munu þátttakendur ræða ýmis mikilvæg málefni sem varða lífsskilyrði hinsegin fólks í Evrópu. Áhersla verður meðal annars lögð á alþjóðlegt samstarf um réttindi, stöðu hinsegin fólks í dreifbýli, vernd gegn ofbeldi og stjórnsemi, stafrænar áskoranir og tækifæri, sem og hvernig gera megi menntun og atvinnulíf meira inngildandi. Viðurkenning intersex fólks verður einnig á dagskrá.

Í tengslum við fundinn verður undirrituð sameiginleg evrópsk yfirlýsing með það að markmiði að efla samstarf og stuðla að aukinni vernd og inngildingu hinsegin fólks í allri Evrópu.

 

Um IDAHOT+

IDAHOT-dagurinn sjálfur er haldinn hátíðlegur 17. maí, til minningar um að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hætti að flokka samkynhneigð sem geðsjúkdóm þann dag árið 1990.

Hin árlega IDAHOT+-ráðstefna hefur það að markmiði að efla samstarf og skilning á stefnumótun í málefnum hinsegin fólks meðal evrópskra ríkisstjórna, alþjóðlegra milliríkjastofnana, alþjóðlegra félagasamtaka, fyrirtækja, fræðasamfélagsins og annarra lykilaðila.

https://www.norden.org/is/node/90911