Norræna ráðherranefndin auglýsir nýtt átak til að efla lýðræðisþátttöku
lýðræðið stendur frammi fyrir áskorunum – þörf á nýjum vinnubrögðum
Bakgrunnur átaksins er breytt staða lýðræðis á Norðurlöndum.
„Norræna ráðherranefndin vill styrkja lýðræði á Norðurlöndum. Þess vegna er okkur mikilvægt að fá yfirlit yfir leiðir sem efla þátttöku og virkni. Við getum nýtt það sem innblástur til að auka áhrif norrænna borgara á lýðræðisleg ákvarðanatökuferli,“ segir Torleif Jonasson, verkefnastjóri lýðræðisátaks Norrænu ráðherranefndarinnar.
Nú þegar eru til mörg verkefni á Norðurlöndum sem vinna að þróun leiða til aukinnar þátttöku, allt frá borgaraþingum til stafrænna samráðsvettvanga. Þau verða kortlögð og greind innan ramma verkefnisins. Vinnan mun leiða af sér skýrslu sem gefur heildstætt yfirlit yfir þau líkön, aðferðir og verkfæri sem notuð eru í norrænu löndunum. Niðurstöðurnar munu síðan nýtast sem grundvöllur til að þróa og miðla skilvirkum norrænum lausnum til að efla lýðræðisþátttöku.
Unt fólk sem virkir þátttakendur
Börn og ungt fólk gegna einnig lykilhlutverki í verkefninu og á ekki aðeins að líta á þau sem markhóp heldur sem virka þátttakendur. Í auglýsingunni er lögð áhersla á að verkefnið eigi að samþætta sjónarhorn réttinda barna og ungs fólks í alla hluta vinnunnar og að ungt fólk eigi að fá raunveruleg áhrif og virkt hlutverk sem þátttakendur.
Stuðla á að betri forsendum norrænna borgara til að taka þátt í lýðræðislegum ferlum og verkefnið á að efla þekkingu þeirra á lýðræðislegri þátttöku og möguleikum til að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða þá. Með því að draga fram norræna reynslu í fleiri löndum er einnig stefnt að því að skapa sjálfbæra innviði fyrir þátttöku á norrænum vettvangi.
Auglýsingin beinist að samtökum á öllum Norðurlöndum og nemur fjárhæðin 950.000 dönskum krónum. Umsóknarfrestur er til 12. ágúst 2026.