Umsókn um skráningu fjölmiðlafólks fyrir þemaþing Norðurlandaráðs 2025

Skráning fjölmiðlafólks á þemaþing Norðurlandaráðs í Helsinki í Finnlandi 31. mars til 1. apríl: Stöndum sterkari saman – nýtt skeið norræns samstarfs um öryggismál og viðbúnað

Hvernig geta Norðurlönd staðið þéttar saman gagnvart vaxandi öryggisógnum? Hvað þarf til að efla varnir, samfélagslegt öryggi og viðbúnað á tímum sem einkennast af fjölþátta ógnum, upplýsingaóreiðu og veikleikum í mikilvægum innviðum? Þann 31. mars og 1. apríl koma 87 norrænir þingmenn saman í Helsinki vegna árlegs þemaþings Norðurlandaráðs til þess að ræða veginn fram á við þegar kemur að öryggis- og varnarmálum á Norðurlöndum, með sérstaka áherslu á Eystrasaltið og aukna samvinnu á sviði almannavarna og afhendingarviðbúnaðar.

Tilkynnt verður um aðalgestaræðumann síðar.

 

Fjölmiðlum gefst kostur á að fylgjast með þingfundum þriðjudaginn 1. apríl. Einnig verða þeir sendir út beint á norden.org. 

Skráning fer fram í gegnum þennan tengil fyrir 26.3.25: https://nordiskrad.conferencemanager.dk/?eventcode=Press_FI_2025 

 

Fréttamenn sem vilja fylgjast með þemaþinginu á staðnum verða að vera skráðir á þingið. Gilds blaðamannaskírteinis er krafist vegna skráningar. 

 

Nánari upplýsingar um þemaþingið: https://www.norden.org/is/themathing-nordurlandarads-2025  

Hagnýtar upplýsingar fyrir fjölmiðla: https://www.norden.org/is/information/upplysingar-fyrir-fjolmidla-um-themathing-nordurlandarads-i-helsinki-2025  

Tengiliður fjölmiðla:

Jakob Colville-Ebeling, samskiptaráðgjafi
+45 61 65 61 95
jacoeb@norden.org 

Tengiliður