Bandarísk yfirvöld viðurkenna Svansmerkið
Svansmerktar snyrtivörur og vefnaðarvara, svo sem einkennisklæðnaður, er nú á lista bandarískra yfirvalda yfir umhverfismerki sem mælt er með.
Viðurkenningin á Svansmerkinu á sér stað í kjölfar þess að bandaríska umhverfisstofnunin (United States Environmental Protection Agency (EPA)) hefur uppfært ráðleggingar sínar til opinberra aðila og einkaaðila varðandi grænni innkaupa á vörum og þjónustu. Ráðleggingar EPA eiga sérstaklega við um Svansmerktar snyrtivörur, fatnað, einkennisfatnað og aðra vefnaðarvöru.
Einn stærsti innkaupaaðili í heimi
Opinbera innkaupakerfið í Bandaríkjunum er eitt það stærsta í heimi með veltu sem nemur allt að 730 milljörðum bandaríkjadala á ári. Í viðurkenningu EPA felst staðfesting á því að umhverfisvottun á vörur og þjónustu skipti máli fyrir fyrirtæki.
„Við vitum að opinberir innkaupaaðilar vilja skýrar leiðbeiningar um hvernig þeir geti tekið umhverfisvænni ákvarðanir. Það að Svanurinn sé orðinn hluti af ráðleggingum EPA þýðir að Svansmerktar vörur fá alþjóðlega athygli og bætta samkeppnisstöðu á bandaríkjamarkaði,“ segir Anna Linusson, framkvæmdastjóri sænsku umhverfisvottunarstofnunarinnar, Miljömärkning Sverige.
Árið 2023 kynnti Svansmerkið ný einkunnarorð, „Erfitt að fá en auðvelt að velja“.
Umhverfismerki sem skiptir máli
Svansmerkið er opinbert umhverfismerki norrænu landanna og ein strangasta umhverfisvottun í heimi. Umhverfismerki í flokki 1 sem eru opinberlega viðurkennd, á borð við Svansmerkið, auðvelda innkaupaaðilum að fylgja ströngum kröfum án þess að búa yfir sérþekkingu á sviði loftslags- og umhverfismála. Norræna ráðherranefndin setti Svansmerkið á fót árið 1989 með það fyrir augum að auðvelda Norðurlandabúum að taka sjálfbærar og umhverfisvænar ákvarðanir í daglegu í lífi sínu – og nú á það sama við um opinbera innkaupaaðila hinum megin Atlantsála.
Með tilskipun 14507 frá Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, eru opinberir aðilar hvattir til þess að kaupa umhverfisvænar vörur og þjónustu í sem mestum mæli og er áhersla lögð á vörur og þjónustu sem samræmist ráðleggingum EPA. Umhverfismerkingar þurfa að sækja um að komast á lista EPA og tekur matsferlið allt að tvö ár.
Upplýsingar um umhverfismerkið Svaninn:
- Stofnað árið 1989 af Norrænu ráðherranefndinni.
- 95 prósent Norðurlandabúa þekkja til Svansins.
- Kröfur Svansmerkingarinnar ná til umhverfis- og loftslagsáhrifa, félagslegra þátta og lífsferils vörunnar.
- Strangt eftirlit: Alls eru gerðar 2074 kröfur sem skiptast á 57 vöruflokka.
- Árlega er meira en 76 þúsund tímum varið í eftirlit og veitingu Svansvottunar á Norðurlöndum.
- Svanurinn er umhverfismerki af gerð 1 samkvæmt ISO 14024 umhverfisvottunarstaðlinum Það þýðir að merkingin er valfrjáls, gerðar eru víðtækar umhverfiskröfur (margir flokkar), merkingin er byggð á lífsferli, kröfur eru hertar eftir því sem fram vindur, kröfur eru þróaðar með gagnsæjum hætti, kostnaður er opinber og rekið er vottunarkerfi óháðs þriðja aðila.