Brautin rudd fyrir hringrásarhagkerfið – nýtt tölublað Green Growth the Nordic Way

01.06.17 | Fréttir
Brændestabel
Ljósmyndari
Benjamin Suomela / Norden.org
Hlutverk hringrásarsjónarmiða við framkvæmd heimsmarkmiða SÞ um sjálfbæra þróun er í brennidepli í nýju tölublaði veftímaritsins Green Growth the Nordic Way, nú í aðdraganda heimsráðstefnu um hringrásarhagkerfið, World Circular Economy Forum 2017, sem fram fer í Helsinki 5.–7. júní.

Norðurlöndin hafa sýnt að þau vilja gegna forystuhlutverki í framkvæmd sjálfbærnimarkmiðanna og norrænt samstarf ryður brautina fyrir hringrásarhugsun á margvíslegum sviðum. Í blaðinu eru greinar um nálgun norræna lífhagkerfisins á tísku og framleiðslu vefnaðarvöru, svo og hringrásarsjónarmið hvað varðar opinber innkaup.

Einnig er fjallað um norræna áætlun til að draga úr umhverfisáhrifum plasts, þar sem umhverfisráðherrarnir leggja línurnar að aukinni sjálfbærni í notkun og endurvinnslu á plasti.

Norræna ráðherranefndin er stærsti samstarfs- og fjármögnunaraðili WCEF 2017. Framhaldsgrein um norræna starfsemi á ráðstefnunni mun birtast í komandi tölublaði Green Growth the Nordic Way.