53 tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

10.06.26 | Fréttir
Nordisk Råds miljopris 2026
Ljósmyndari
Getty Images
Alls 53 verkefni sem fræða börn og ungmenni um umhverfis- og loftslagsmál hafa möguleika á að hljóta tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Sjáðu allan listann hér.

Í ár bárust 69 tillögur sem skiptast á 53 verkefni og/eða einstaklinga. Tillögurnar 53 koma víðs vegar að af Norðurlöndunum og veita innsýn í þau grænu verkefni sem eru í gangi og tengjast þema ársins, þar sem sérstök áhersla er lögð á verkefni sem fræða börn og ungmenni.

 

Tillöguferli umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs er opið öllum og þar er ríka áhersla lögð á opinbert og lýðræðislegt ferli. Hægt hefur verið að tilnefna bæði einstaklinga, verkefni, fyrirtæki og samtök sem vinna að sjálfbærari framtíð innan ramma þema ársins.

 

Tillögunar ná til samtaka, fyrirtækja og einstaklinga og spanna fjölbreytt svið: allt frá staðbundnum verkefnum sem kenna börnum að rækta eigin mat og endurheimta votlendi til landsáætlana um sjálfbærnimenntun og norrænna tengslaneta ungmenn sem hafa áhrif á loftslagsstefnu.

 

Tilkynnt verður hvaða tillögur hljóta tilnefningu hinn 24. júní á Suomi Arena í Finnlandi. Verðlaunin verða svo veitt við hátíðlega athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í október 2026. Verðlaunahafinn mun þar taka við verðlaunagripnum „Nordlys“ ásamt verðlaunafé sem nemur 300.000 dönskum krónum. Umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að beina athygli að nýju þema á hverju ári, og árið 2026 er sjónum sérstaklega beint að frumkvæði sem fræða börn og ungmenni um umhverfis- og loftslagsmál.

Tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026:

Svíþjóð
  • Sysav
  • FutureMinds 
  • Lennart Alves
  • Ola Fransson - Naturum
  • Stiftelsen Håll Sverige Rent
  • Nordic Youth Climate Alliance
  • Projektet Viktiga Vatten, Fältbiologerna
Álandseyjar
  • Ålands Naturskola
  • Östersjöfonden
Danmörk
  • Haver til maver
  • Afdelingen for Bæredygtig Udvikling
  • Gaia, Unge for et Grønt Erhvervsliv
  • Foundation for Environmental Education
  • GreenKayak
  • Center for Macroecology, Evolution and Climate (CMEC)
  • Astra - det nationale naturfagscenter
Noregur
  • SKANSKA
  • Miljøagentene
  • Cissi Klein videregående skole 
  • Oslo kommune for Klimaskole og Klimapilotene
  • Stiftelsen Vårt Hav
  • Dolly Jørgensen
Finnland
  • Tvärminne zoologiska station, Helsingfors universitet
  • Ilmastoisovanhemmat ry
  • Saaristomeren biosfäärialue, biosfääritoimisto
  • Porin kaupunki (Pori kommune)
  • Suomen ympäristöopisto SYKLI
  • WWF Koulukiertue
  • Mika Vanhanen: Peace Circle
  • Eettisen kaupan puolesta ry
  • Vihreä lippu
  • MTK Koski Tl ry, Kosken Tl kunta
  • Biologian ja maantieteen opettajien liitto BMOL ry
  • Lasten ja nuorten puutarhayhdistys ry
  • ULOS-UT-OUT-ulkona oppimisen suurtapahtuma
  • Natur och Miljös naturskolverksamhet
  • Suomen Ladun lasten ja perheiden toiminta
  • Luontoliitto ry
  • 70 seikkailua ennen seiskaa 
  • Minun mereni ry (My Sea association)
  • Elonkierron Ystävät ry / Elonkierto
Grænland
  • Anna-Karen Thomassen Hoffmann 
Ísland
  • Ungir umhverfissinnar
  • Ásthildur Björg Jónsdóttir
  • Umhverfis- og orkustofnun
  • Miðstöð útivistar og útináms
  • Grænfáni Landverndar - ECO-school
  • Margrét Hugadóttir
  • Menntateymi Landverndar
  • SORPA
  • Orkuveitan
  • Náttúruminjasafn Íslands
Färöarna
  • RÓTIN 

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og er markmið þeirra að auka vitund um umhverfismál á Norðurlöndum.