Nýr norrænn samstarfsvettvangur á að efla fæðuöryggi
Bárður á Steig Nielsen, utanríkis- og sjávarútvegsráðherra Færeyja, á fundinum í Þórshöfn þann 10. júní.
Norrænu ráðherrarnir um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt hafa ákveðið að koma á fót nýjum samstarfsvettvangi um norrænt fæðuöryggi innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Samstarfsvettvangurinn mun stuðla að traustara matvælaframboði á öllum Norðurlöndum, meðal annars með því að tryggja miðlun þekkingar og samhæfingu milli landanna. Ákvörðunin fylgir eftir Karlstad-yfirlýsinguni frá árinu 2024, þar sem norrænu ráðherrarnir sammæltust um að efla samstarf um afhendingaröryggi.
Christian Rabjerg Madsen, ráðherra náttúru og dýravelferðar í Danmörku: „Öflugt viðbúnaðarsamstarf norrænu landanna um matvælaframboð er viðeigandi varúðarráðstöfun á tímum aukinnar öryggispólitískrar óvissu. Með þessum samstarfsvettvangi fáum við nú mikilvæga viðbót við þau verkefni sem þegar eru í gangi innan NATO og á vettvangi ESB.“
Bárður á Steig Nielsen, utanríkis- og sjávarútvegsráðherra Færeyja: „Á þessum tímum er norrænt samstarf um samfélagsöryggi, þar á meðal fæðuöryggi, enn brýnna. Þess vegna er sjálfsagt að við eflum norrænt samstarf á þessu sviði.“
Öflugt viðbúnaðarsamstarf norrænu landanna um matvælaframboð er viðeigandi varúðarráðstöfun á tímum aukinnar öryggispólitískrar óvissu.
Tengir saman norrænar og alþjóðlegar aðgerðir
Verkefnið tengir norrænt samstarf betur saman og gegnir um leið mikilvægu svæðisbundnu hlutverki milli ESB og NATO. Samstarfsvettvangurinn verður skipaður sérfræðingum frá löndunum með þekkingu á matvælaöryggi og viðbúnaði. Aðgerðir eiga að taka mið af bæði sameiginlegum áskorunum og landsbundnum mun á aðfangakeðjum og framleiðslu.
„Samstarfsvettvangurinn um norrænt matvælaöryggi er mikilvægt skref í norrænu viðbúnaðarstarfi. Þetta er metnaðarfull útfærsla á Karlstad-yfirlýsingunni og sýnir skýra pólitíska forgangsröðun í þágu styrkts viðbúnaðar,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Fyrsta verkefni samstarfsvettvangsins verður að vinna þriggja ára starfsáætlun með áþreifanlegum samstarfssviðum. Markmiðið er að samstarfsvettvangurinn verði frá árinu 2028 varanlegur hluti af norrænu samstarfi.
Þetta er metnaðarfull útfærsla á Karlstad-yfirlýsingunni og sýnir skýra pólitíska forgangsröðun í þágu styrkts viðbúnaðar.
Um Karlstad-yfirlýsinguna
Karlstad-yfirlýsingin var samþykkt 9. júní 2024 af norrænu ráðherrunum um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt, MR-FJLS. Í yfirlýsingunni eru tilgreind nokkur svið þar sem aukið norrænt samstarf er talið afgerandi til að tryggja matvælaframboð landanna.
Norræni ráðherrafundurinn í Þórshöfn þann 10. júní fór fram undir formennsku Danmerkur og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni. Á dagskrá fundarins voru einnig væntanleg ráðstefna um matarsóun, umræður um tilmæli í nýrri skýrslu um blá matvælakerfi, ákvörðun um að hefja verkefni sem á að styrkja nýliðun og hæfni í blágrænu atvinnugreinunum fiskveiðum, fiskeldi, landbúnaði og skógrækt, umræður um áskoranir strandsamfélaga ef AMOC, veltihringrás Atlantshafsins, veikist, sem og samstarfið um One Health-yfirlýsinguna um sýklalyfjaónæmi.