Hér eru tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

24.06.26 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Frá hreyfanlegum náttúruskóla á Álandseyjum til umhverfissamtaka barna í Noregi. Í ár beina Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs kastljósinu að verkefnum sem uppfræða börn og ungmenni í umhverfis- og loftslagsmálum.

Tilnefningarnar átta til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026: 

Tilkynnt verður um verðlaunahafann hinn 20. október.

Tilkynnt verður um handhafa umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026 þann 20. október. Verðlaunagripurinn Norðurljós verður afhentur 28. október við verðlaunaathöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki. Verðlaunahafinn hlýtur 300.000 danskar krónur.

Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Þema umhverfisverðlaunanna er mismunandi frá ári til árs. Þema ársins 2026 snýst um skapa ungum þekkingu, hæfni og rödd til að geta haft áhrif á framtíð sína og leggja sitt af mörgum til sjálfbærrar þróunar og að bregðast við loftslagsbreytingum. 

Lestu þematextann hér:

Fræðsla fyrir börn og ungmenni í náttúru- og loftslagsmálum

Það eru börn og ungmenni nútímans og framtíðarinnar sem munu þurfa að lifa með afleiðingum loftslagsbreytinganna. Fræðsla um loftlagsmál og líffræðilega fjölbreytni eykur þekkingu þeirra, þátttöku og getu til að hafa áhrif, sem leggur grunn að meðvitaðri og ábyrgri kynslóð.

 

Þemað í ár snýst um skapa ungum þekkingu, hæfni og rödd til að geta haft áhrif á framtíð sína og leggja sitt af mörgum til sjálfbærrar þróunar og að bregðast við loftslagsbreytingum. Á tímum aukinnar upplýsingaóreiðu og lýðræðishnignunar, þar sem tjáningarfrelsið á högg að sækja og þrengt er að frjálsri félagastarfsemi, er sérlega mikilvægt að efla menntun og samfélagsþátttöku ungs fólks.

 

Ef börnum og ungmennum er gert kleift að skilja flókin tengsl, vera gagnrýnin á heimildir og þróa með sér gagnrýna hugsun má vinna gegn upplýsingaóreiðu og auka lýðræðislega þátttöku um leið og þau þróa með sér ábyrgð og skuldbindingu gagnvart umhverfi og náttúru. Þekking á náttúru og loftslagi snýst ekki einungis um umhverfið heldur einnig um inngildingu og lýðræði.

 

Fræðslan þarf að vera byggð á rannsóknum og varpa ljósi á tengslin milli loftlagvandans og líffræðilegrar fjölbreytni sem og á þátt mannsins með neyslu og lífsstíl. Þessi fræðsla getur haft áhrif til langs tíma með breyttu neyslumynstri, aukinni grænni nýsköpun og aukinni lýðræðisþátttöku Hún stuðlar einnig af lausnamiðaðri hugsun, virðingu fyrir náttúrunni og samfélagslegri ábyrgð. Um leið stuðlar hún að aukinni vitund um hvernig loftslagsbreytingar og náttúrutap hafa áhrif á lífsgrundvöllinn á Norðurlöndum – frá umhverfi hafsins til skóga og vistkerfa á norðurslóðum.

 

Þemað styður við mörg heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal markmið 4 (Góð menntun fyrir alla), markmið 13 (Aðgerðir í loftslagsmálum), markmið 12 (Sjálfbær neysla og framleiðsla), markmið 15 (Líf á landi), markmið 14 (Líf í vatni) og markmið 17 (Samvinna um markmiðin), og stuðlar þannig með virkum hætti að sameiginlegum aðgerðum Norðurlanda í þágu sjálfbærrar framtíðar.

 

Þemað er viðeigandi fyrir öll norrænu löndin þar sem þau eiga margt sameiginlegt hvað varðar menntakerfi, skuldbindingar í umhverfismálum og mikilli hefð fyrir lýðræðisþátttöku barna og ungmenna. Um leið standa Norðurlöndin öll frammi fyrir þeirri áskorun að vernda vistkerfi, vinna gegn loftslagsbreytingum og tryggja sjálfbæra framtíð, sem gerir þemað sérstaklega viðeigandi á öllu svæðinu.

Um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Þau eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar.

Ferlið er opið og er öllum frjálst að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár bárust 53 tillögur.