Norðurlandaráð fundar um öll Norðurlönd

29.06.26 | Fréttir
Utvalget for Kunnskap og Kultur på Skagens kunstmuseum.

Utvalget for Kunnskap og Kultur på Skagens kunstmuseum.

Ljósmyndari
Linnea Reuterberg/Norden.org

Norræna þekkingar- og menningarnefndin á listasafninu í Skagen.

Öryggismál í Nuuk, menningarlegur viðbúnaður í Skagen, sjálfbær matvælaframleiðsla í Maríuhöfn, velferð í dreifðum byggðum í Storuman og stjórnsýsluhindranir í Stokkhólmi. Í síðustu viku hélt Norðurlandaráð árlega sumarfundi sína víða um Norðurlönd. Sumarfundirnir gefa þingmönnum færi á að kynnast því hvernig norræn stefnumótun mætir daglegu lífi og taka með sér reynslu frá nærsamfélögum, fyrirtækjum og íbúum inn í áframhaldandi pólitískt starf.

Um sumarfundi Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð heldur sex reglulega fundi á ári, yfirleitt í norrænu höfuðborgunum, þar sem allir fulltrúar ráðsins koma saman. Sumarfundirnir hafa sérstakan karakter. Nefndirnar funda á ólíkum stöðum á Norðurlöndum, sem gefur þingmönnum tækifæri til að heimsækja aðra hluta svæðisins og öðlast dýpri skilning á lífi fólks í fjölbreyttum nærsamfélögum Norðurlanda. Markmiðið er að veita þingmönnum betri innsýn í þær áskoranir, tækifæri og lífsskilyrði sem einkenna ólíka hluta Norðurlanda. Jafnframt er undirbúið pólitískt starf fram að þinginu með meðferð tillagna, tilmæla og annarra mála sem eru til umfjöllunar.

Nuuk, Grænlandi: Forsætisnefnd Norðurlandaráðs

Sumarfundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs var að þessu sinni haldinn í Nuuk, eftir að forsætisnefndin ákvað fyrr á árinu að flytja fundinn frá Rovaniemi sem skýrt merki um samstöðu með Grænlandi. Í tengslum við fundina tók Ville Väyrynen, forseti Norðurlandaráðs, þátt í þjóðhátíðarfögnuði Grænlands og hitti fulltrúa Inatsisartut, heilbrigðisgeirans og fulltrúa Kanada á Grænlandi. Vegna veðurs þurfti hluti forsætisnefndarinnar að taka þátt rafrænt, en dagskráin í Nuuk fór fram eins og áætlað var. Forsætisnefndin ræddi meðal annars vinnu við nýja norræna stefnu um samfélagsöryggi og fundaði með grænlenskum stjórnvöldum og öðrum aðilum um öryggi á norðurslóðum, borgaralegan viðbúnað, réttindi barna og félagslegan viðnámsþrótt. Samtölin undirstrikuðu að norrænt öryggi snýst um mun meira en hernaðarvarnir, í samræmi við áherslu forsetaáætlunar Finnlands og Álandseyja á heildstætt öryggi. Heimsóknin staðfesti jafnframt mikilvægi náins norræns samstarfs og þess að standa saman með Grænlandi á tímum geopólitískrar óvissu.

Maríuhöfn, Álandseyjum: Norræna sjálfbærninefndin

Matvæli úr heimabyggð, matvælaviðbúnaður og sjálfbærni voru í brennidepli þegar Norræna sjálfbærninefndin hélt sumarfund sinn á Álandseyjum. Þrátt fyrir að Álandseyjar séu lítið svæði leggur eyjasamfélagið verulegt af mörkum til matvælaframboðs Finnlands með umfangsmiklum landbúnaði. Álandseyjar eru jafnframt þekktar fyrir að leggja áherslu á staðbundnar vörur og neyslu á innlendri framleiðslu. Þess vegna heimsótti nefndin nokkur fyrirtæki sem sýndu hvernig svæðið vinnur með staðbundin matvæli, meðal annars Ålands Trädgårdshall, Grannas Äppel og Taffel, auk býla og veitingastaða. Heimsóknirnar veittu innsýn í hvernig sjálfbærar lausnir eru nýttar í reynd. Þátttakendur fengu meðal annars að sjá hvernig gróðurhús eru hituð með sjávarvarma og hvernig afgangsvarmi frá kælingu á ávöxtum og grænmeti er geymdur og nýttur aftur að vetri til.

Storuman, Svíþjóð: Norræna velferðarnefndin

Hvernig tryggjum við sem besta velferð, óháð því hvar eða hvernig íbúar búa? Sú spurning var í brennidepli þegar Norræna velferðarnefndin kom saman til árlegs sumarfundar í Storuman í Svíþjóð. Þótt íbúafjöldi í dreifðum byggðum sé minni en í borgum eru þarfirnar þær sömu. Það krefst bæði nýrrar hugsunar, pólitískrar forgangsröðunar og stuðnings að tryggja góða velferðarþjónustu. Heimsóknin til Storuman sýndi einnig hvernig stafvæðing er orðin mikilvægur hluti lausnarinnar, þar sem stafræn heilsugæsla og ný tækni gera kleift að tryggja jafnan aðgang að meðferð, jafnvel þegar langt er í næsta sjúkrahús.

Stokkhólmur, Svíþjóð: Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin

Hvernig gerum við það auðveldara að búa, starfa og reka fyrirtæki þvert á Norðurlönd? Um það var fjallað á sumarfundi Norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar í Stokkhólmi Nefndin ræddi það ásamt sænska seðlabankanum hvernig greiðslur yfir landamæri geta orðið hraðari og ódýrari fyrir íbúa og atvinnulíf. Nefndin fékk einnig í heimsókn norræna fréttaritara frá Danmörku, Noregi og Finnlandi, sem bentu á vaxandi áhuga á norrænum málefnum samhliða því að öryggispólitískar og efnahagslegar áskoranir gera samstarf norrænu landanna sífellt mikilvægara.

Skagen, Danmörku: Norræna þekkingar- og menningarnefndin

Norræna þekkingar- og menningarnefndin hélt sumarfund sinn í Skagen, þar sem hún fjallaði um nokkur pólitísk mál, meðal annars þingmannatillögu um aukið miðlalæsi ungs fólks á Norðurlöndum. Á dagskrá voru einnig fundir um bókasafnasamstarf, stafvæðingu og áskoranir norrænnar kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu gagnvart alþjóðlegum streymisveitum. Með heimsóknum á listasafn Skagen, MARTEC og Tolne Efterskole fékk nefndin innsýn í hvernig menning, menntun og hæfni stuðla að öflugum nærsamfélögum og sterkari Norðurlöndum. Það var því einnig viðeigandi umgjörð að einmitt þekkingar- og menningarnefndin skyldi funda í Skagen, þar sem norræn list, menning og samstaða hafa skilið eftir sig varanleg spor, meðal annars í gegnum listamannasamfélag Skagenmálaranna. Sumarfundinum lauk með þátttöku í Jónsmessuhátíðarhöldum í Skagen.

Þrátt fyrir ólík viðfangsefni og landfræðilegar aðstæður áttu sumarfundirnir eitt sameiginlegt: að veita þingmönnum Norðurlandaráðs betri grunn til að þróa stefnu út frá reynslu frá öllum Norðurlöndum. Sumarfundirnir sýna hvernig norrænt samstarf þróast ekki aðeins við fundarborðið, heldur einnig í samtölum við fólkið, staðina og reynsluna sem stefnan á að þjóna.