Fjármálaráðherrar Norðurlanda um stöðu efnahagsmála og skilvirkni í rekstri hins opinbera

28.10.14 | Fréttir
 Nordiskt finansministermöte i Rosenbad
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Góður árangur Norðurlanda varðandi samninga við skattaskjól, samkeppni í opinbera geiranum og og staða efnahagsmála voru meðal umræðuefna á fundi fjármála- og efnahagsráðherra Norðurlanda í Stokkhólmi 28. október.

 

 

Ráðherrarnir bentu á að efnahagshorfurnar mótuðust enn af því hversu veikur efnahagsbatinn væri í Evrópu. Löndin lögðu áherslu á mikilvægi þess að halda áfram efnahagslegum endurbótum í því skyni að auka hagvöxt og fjölga störfum. Ráðherrarnir ræddu það endurskoðunarstarf sem snertir ESB/EES-löndin með áherslu á reglur um fjármálamarkað.

Aukin skilvirkni í opinbera geiranum var líka á dagskrá fundarins, meðal annars hvernig hægt er að beita samkeppni til að auka skilvirkni og gæði til gagns fyrir borgarana og samfélagið. Til þess að þetta skili árangri þarf meðal annars traustar og réttar upplýsingar og góða kunnáttu á sviði útboða og mats.  

Fjármálaráðherrarnir tóku með ánægju á móti lokaskýrslunni um verkefni sem Norðurlönd hafa unnið að um margra ára skeið varðandi upplýsingaskipti við skattaskjól. Verkefninu lauk í september síðastliðnum. Samningar hafa nú verið gerðir við nánast öll skattaskjól. Verkefnið hófst árið 2006 og hefur verið mjög árangursríkt og haft í för með sér að skatttekjur af skattskyldum eignum utanlands hafa aukist verulega.

 Norðurlönd hafa einnig beitt sér í alþjóðastarfi sem miðar að réttlátri og skilvirkri skattheimtu þvert á landamæri. Löndin eru eindregið þeirrar skoðunar að alþjóðleg viðmið OECD um sjálfvirk upplýsingaskipti eigi að taka gildi sem fyrst.

Fundurinn var haldinn innan ramma samstarfsins í Norrænu ráðherranefndinni, en þar fara Íslendingar með formennsku á þessu ári.