Forsætisráðherrar Norðurlandanna ræddu málefni flóttafólks í Lundúnum
Málefni flóttafólks voru helsta umræðuefni fundarins. Forsætisráðherrarnir voru á einu máli um að staðan í þeim málum væri nú talsvert önnur en í október, þegar þeir hittust í Danmörku og á Íslandi.
Nú sem fyrr telja þeir afar mikilvægt að leggja rækt við samstarf og samskipti sín á milli. Líkt og samstarfsráðherrar Norðurlanda, sem hittust í Finnlandi á miðvikudag, lögðu forsætisráðherrarnir ennfremur áherslu á að norrænu löndin héldu áfram að deila reynslu sín á milli og læra hvert af öðru.
„Við áttum afar góðar umræður um ástandið í málefnum flóttafólks. Norðurlöndin eru fjölskylda sem á í öflugu samstarfi. Með því að skiptast reglulega á þekkingu og hugmyndum tryggjum við getu okkar til að leita í sameiningu lausna á sameiginlegum viðfangsefnum,“ sagði Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands.
„Í dag ræddum við einkum vel heppnaða aðlögun flóttafólks , auk landamæramála. Það er mikilvægt að tryggja að þau viðfangsefni sem við stöndum nú frammi fyrir verði ekki til þess að hægja á öðrum þáttum norræns samtarfs, svo sem starfinu gegn stjórnsýsluhindrunum sem torvelda viðskipti milli landanna,“ sagði Sipilä.