Norrænu löndin efla samstarf um viðbúnað
Det dansk-færøske formandskab under mødet i Torshavn.
Ákvörðunin er tekin á grundvelli mikils og viðvarandi norræns áhuga á málaflokknum, sem í dag skiptist milli nokkurra ólíkra verkefna. Með ákvörðuninni er lagt upp með að unnin verði áætlun sem getur skapað heildstæðari og stefnumótandi ramma utan um samstarf um samfélagsöryggi og viðbúnað.
„Viðbúnaður snýst í grunninn um getu okkar til að vernda borgarana þegar mest á reynir. Þegar krísa skellur á skiptir sköpum að við getum reitt okkur hvert á annað og norrænu löndin hafa allt að vinna með því að sameina kraftana. Ein og sér erum við berskjölduð, saman erum við sterk. Þess vegna er ég mjög ánægð með að við eflum nú samstarfið á sviði viðbúnaðar og samfélagsöryggis,“ segir Monika Rubin, samstarfsráðherra Danmerkur.
„COVID-faraldurinn leiddi ljós skort á samhæfingu í viðbúnaði milli norrænu landanna sýndi okkur að frjáls för á Norðurlöndum er viðkvæmari en við töldum. Markmiðið um að gera Norðurlönd að samþættasta svæði heims byggist á því að samstarfið virki einnig með skilvirkum hætti á krísutímum. Þess vegna er ákvörðun dagsins mikilvægt skref í rétta átt,“ segir Bárður á Steig Nielsen, samstarfsráðherra Færeyja.
Þegar krísa skellur á skiptir sköpum að við getum reitt okkur hvert á annað og norrænu löndin hafa allt að vinna með því að sameina kraftana.
Norræn áætlun verður mótuð
Ráðherrarnir mæla með því að komið verði á fót áætlunarnefnd með fulltrúum frá norrænu löndunum. Markmiðið er að styrkja meðhöndlun sameiginlegra áskorana, efla miðlun þekkingar og virkja fleiri málaflokka í kerfisbundnara og þverlægu samstarfi á norrænum vettvangi. Ráðherrarnir hafa veitt skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar umboð til að þróa nýju áætlunina um viðbúnað.
„Við hlökkum til að leggja fram tillögu að norrænni áætlun sem getur tryggt miðlun þekkingar og samhæfingu þvert á málaflokka og lönd,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Heimsókn stjórnsýsluhindranaráðsins
Sumarfundur ráðherranna gaf einnig tilefni til árlegrar heimsóknar stjórnsýsluhindranaráðsins og umræðna um nokkur málefni sem hafa mikla þýðingu fyrir frjálsa för á Norðurlöndum. Meðal annars ræddu þau forgangsmál stjórnsýsluhindranaráðsins varðandi aðgang að stafrænni þjónustu, skattatengdar stjórnsýsluhindranir og áskoranir tengdar lífeyrismálum þvert á landamæri.