Ungt fólk ræddi stjórnmál í Útey
Þátttakendur í sumarbúðum UNR í Útey 2026.
Sumarbúðirnar í Útey fóru nú fram í fjórða sinn og njóta mikilla vinsælda meðal ungmenna sem taka virkan þátt í norrænum stjórnmálum Hér kemur saman ungt fólk úr öllu litrófi stjórnmálanna rétt eins og í Norðurlandaráði og vinnur sameiginlegar ályktanir sem snerta framtíðarsýn þeirra um Norðurlönd.
Norðurlandaráð ungmenna er vettvangur ungliðahreyfinga stjórnmálaflokka á Norðurlöndum. UNR hefur um langt skeið haft málfrelsi á fundum Norðurlandaráðs og komið að ákvarðanatökum ráðsins auk þess sem ungmennin leggja fram nýstárlegar ályktanir og nýja hugsun í umræðum. Margar ályktanir UNR hafa orðið til í Útey.
Útey sem fundarstaður
Útey á sér langa sögu sem fundarstaður ungs fólks sem hefur áhuga á samfélagsmálum auk þess sem sumarbúðir ungliðahreyfingar norska verkamannaflokksins hafa verið haldnar þar í fjölda ára. Eyjan varð vettvangur hryðjuverkaárásar 22. júlí 2011 þar sem 69 manns, meirihlutinn ungt fólk, létu lífið. Síðan hefur Útey verið minnisvarði en einnig pólitískur fundarstaður meira en tíu þúsund ungmenna á ári hverju.
Á fyrsta degi sumarbúðanna voru haldnar vinnustofur til hefja vinnu að nýjum ályktunum. Þátttakendur ræddu málefni líðandi stundar, svo sem öryggismál og viðbúnað, lýðræði, velferð og menntun. Ungmennin skiptust á reynslu og hugmyndum um þessi mál og hvernig bæta mætti samfélagið.
Ein sviðsmyndin sem var til umræðu var hvernig samfélagið ætti að bregðast við langvarandi rafmagnsleysi. Sjónarhorn unga fólksins frá Úkraínu skipti miklu máli enda hafa mörg þeirra reynslu af slíkum aðstæðum. Meðal niðurstaðna þeirrar umræðu var mikilvægi samstarfs við nágranna, verslana í nærsamfélaginu og viðbúnaðar einstaklinga.
Þegar hætta steðjar að beinist athyglin oftar að þéttbýlissvæðum en dreifbýli en svæðin þurfa hvert á öðru að halda.
Annar hápunktur sumarbúðanna var dagskrárliðurinn Landsskýrslur þar sem þátttakendur sögðu frá stjórnmálastöðunni í heimalandinu og viðfangsefnum sem við blasa. Sérstaka athygli vakti skýrslan frá Úkraínu þar sem þátttakendur fræddust um menningu og stjórnmál en hlýddu einnig á persónulegar frásagnir, vonir og framtíðarsýn að loknu stríði.
Osallistujien päivän mittaan työstämät päätöslauselmat esitellään Pohjoismaiden neuvoston presidentille ja muille osallistujille.
Ályktanir verða til
Á fimmtudeginum var unnið að því að skrifa ályktanir út frá umræðum dagsins á undan. Unnið var af kappi í nokkrar klukkustundir og afraksturinn var meira en 15 ályktanir sem kynntar voru gesti sumarbúðanna sem var Ville Väyrynen forseti Norðurlandaráðs.
Meðal ályktana voru tillögur um að styrkja stöðu æskulýðsráða á Norðurlöndum, innleiða skyldubundndar skólakosningar, bæta menntun um sýnilega og ósýnilega fötlun og styrkja samstarf björgunarsveita norrænu landanna.
Ville Väyrynen tók við ályktununum og mælti á þessa leið:
Með þátttöku ungs fólks styrkist lýðræðið og þegar ungt fólk lætur til sín taka eflist samfélagið.
Margar nýstárlegar og framsæknar hugmyndir var að finna í ályktununum sem urðu til í sumarbúðunum. Nokkrar þeirra verða kynntar á þingi Norðurlandaráðs ungmenna í Helsinki í október. Verði þær samþykktar munu fulltrúar UNR kynna þær fyrir fagnefndum Norðurlandaráðs til frekari afgreiðslu. Ferlið veitir unga fólkinu einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á norræn stjórnmál, en það þykir enn fremur óvenjulegt víða um heim.
Framtíð Norðurlanda er í góðum höndum.
Þess vegna styður Norðurlandaráð Norðurlandaráð ungmenna og sumarbúðirnar í Útey. Margt ungt stjórnmálafólk hefur stigið sín fyrstu skref í alþjóðlegu stjórnmálastarfi á vettvangi UNR og áttað sig á mikilvægi norræns samstarfs.