Hreinsistöðvar fyrir lífeldsneyti og nýtt og vistvænna hagkerfi – nýtt tölublað Green Growth the Nordic Way
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Í nýjasta tölublaði veftímaritsins Green Growth the Nordic Way er rýnt í hlutverk hreinsistöðva fyrir lífeldsneyti í nýju og vistvænna hagkerfi.
Í aðdraganda COP21-loftslagsráðstefnunnar, sem fram fer í París í desember næstkomandi, þarf heimsbyggðin að leita nýrra lausna – ekki aðeins til að stemma stigu við loftslagsbreytingum heldur einnig til að tryggja áframhaldandi vöxt og velferð í nýju, grænu hagkerfi.
Einn mikilvægur þáttur nýs, vistvænna hagkerfis er skapandi og virðisaukandi endurnotkun hráefnis.
Hreinsistöðvar fyrir lífeldsneyti eru ein leið til að takast á við þetta viðfangsefni og í þessu tölublaði Green Growth the Nordic Way má lesa um starfið innan átaksverkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um grænan hagvöxt, svo og möguleika Norðurlandanna til að styrkja stöðu sína innan nýs og vistvænna hagkerfis.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.nordicway.org.