Jorma Ollila kynnir norræna skýrslu um orkumál 20. júní
Jorma Ollila er ekki síst þekktur sem fyrrum framkvæmdastjóri Nokia, en árið 2016 tók hann að sér að vinna stefnumótandi úttekt á orkumálasamstarfi Norðurlanda. Verkið fólst í því að greina norrænt samstarf á sviði orkumála og setja fram 10–15 tillögur um þróun þess á næstu 5–10 árum.
Skýrsla Jorma Ollila er hugsuð sem innlegg ytri aðila í umræðuna um framtíðarsamstarf Norðurlanda í orkumálum. Orkumálaráðherrar Norðurlanda móta og taka endanlegar ákvörðun um samstarfið.
Norðmenn gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2017 og því er það orkumálaráðherra Noregs sem veitir skýrslunni viðtöku. Í tilefni birtingar skýrslunnar verður efnt til blaðamannafundar í Ósló þann 20. júní. Blaðamannafundurinn hefst kl. 10:30 í Akersgata 59, pressrum D1129 R5. Fundurinn fer fram á ensku.
Blaðamannafundinum verður streymt á netinu á síðu Norrænu ráðherranefndarinnar á Facebook og regjeringen.no.