Norðurlandaráð vill gera úttekt á starfsskilyrðum og flugöryggi
37 atkvæði voru greidd með nefndarálitinu en 22 á móti. Einn sat hjá í atkvæðagreiðslunni.
Til grundvallar nefndarálitinu lá þingmannatillaga, sem norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin hafði áður samþykkt á fundi sínum í janúar, einnig að lokinni atkvæðagreiðslu.
Æ fleiri flugfélög hverfa nú frá hefðbundnum ráðningarkjörum og ráða eða leigja ódýrt vinnuafl í staðinn. Í þingmannatillögunni er því haldið fram að slíkir ráðningarhættir geti ógnað flugöryggi.
„Breyttir ráðningarhættir flugfélaga geta ógnað flugöryggi,“ segir í þingmannatillögunni, sem var upphaflega lögð fram af flokkahópi jafnaðarmanna.
Pyry Niemi, fulltrúi í flokkahópi jafnaðarmanna og formaður norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar, kynnti tillöguna á þemaþinginu.
Lena Asplund frá flokkahópi hægrimanna lagði fram fyrirvara, með þeim rökstuðningi að engin tengsl væru á milli ráðningarkjara og flugöryggis. Sögðu hægrimenn að engar þeirra rannsókna, sem gerðar hefðu verið á þessu sviði, skytu stoðum undir þá fullyrðingu sem sett er fram í þingmannatillögunni.
Meirihluti atkvæða féll nefndarálitinu í vil á þemaþinginu og fer það því áfram til norrænu ríkisstjórnanna til afgreiðslu.