Norðurlandaráð vinnur sigur í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi

10.09.15 | Fréttir
Annicka Engblom
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Ríkisstjórnir Norðurlanda gáfu í dag út yfirlýsingu um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi sem er í samræmi við „One Health“-átak Norðurlandaráðs . „Við erum ákaflega ánægð með að ríkisstjórnir Norðurlanda hafi hlustað á skilaboðin frá okkar um að hugsa þurfi heildstætt og með að Norðurlönd hafi nú tekið fyrsta skrefið í sameiningu,“ segir Annicka Engblom, þingmaður Hófsama flokksins (Moderaterna) í Svíþjóð og formaður borgarar- og neytendanefndar Norðurlandaráðs.

Norðurlandaráð hefur um árabil beitt sér markvisst fyrir því að mótuð verði heildstæð stefna gegn sýklalyfjaónæmi. Það hefur verið gert í tengslum við „One Health“-átakið, en þar er lögð áhersla á samspilið milli lífsgæða dýra og manna.

„Yfirlýsingin sem gefin var út í dag sýnir að starf Norðurlandaráðs skilar árangri og að það hafi gildi að móta lausnir þvert á landamæri og flokkapólitík eins og við gerum í nefndum Norðurlandaráðs,“ segir Engblom.

Hér er yfirlýsing ríkisstjórna Norðurlanda: Norrænir ráðherrar taka höndum saman gegn sýklalyfjaónæmi

„Sterk rödd í ESB“

„Nú þegar ríkisstjórnir allra norrænu landanna hafa fylkt sér að baki sameiginlegri yfirlýsingu hafa Norðurlönd öðlast sterka rödd á alþjóðavettvangi, og þó einkum í ESB þar sem við getum raunverulega komið til leiðar jákvæðum breytingum,“ segir Annicka Engblom, sem sjálf lét í sér heyra um „One Health“ á Evrópuþinginu fyrr á þessu ári.

Nánari upplýsingar hér: Norðurlandaráð skorar á ESB að berjast gegn sýklalyfjaónæmi

„One Health“-átakið var fyrst kynnt af flokkahópi jafnaðarmanna árið 2011 í forsetatíð Henrik Dam Kristensens, þingmanns danskra jafnaðarmanna.

„Þessi yfirlýsing er ákaflega ánægjuleg. Með hana á bak við okkur getum við látið ennþá meira til okkar taka á alþjóðavettvangi. Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi er eitt af helstu alþjóðlegu úrlausnarefnum samtímans og stuðningur ríkisstjórna Norðurlanda við „One Health“ er mikilvægt skref í rétt átt,“ segir Henrik Dam Kristensen.