Ný samstarfsáætlun ryður norrænni nýsköpun braut

15.12.17 | Fréttir
IT
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Stafræn tækniþróun, hnattvæðing og hæfni fyrirtækja til þess að bregðast hratt við breytilegum heimi er í brennidepli í nýrri samstarfsáætlun í nýsköpunar- og atvinnumálum. Áætlunin tekur til áranna 2018-2021.

Tilgangur nýju samstarfsáætlunarinnar er að tryggja hæfni norrænna fyrirtækja til mikillar aðlögunarhæfni, styrkja þau á sviði nýsköpunar og samkeppnishæfni ásamt því að auka hnattræna markaðsmöguleika þeirra.

Í áætluninni kemur fram að hnattvæðing og tækniþróun feli bæði í sér áskoranir og ný tækifæri fyrir fyrirtækin. Vegna breytileika og óvissu geta fyrirtæki þurft að breyta starfsemi sinni með litlum fyrirvara.

„Nú eru í hverju landi fyrir sig mörg fyrirtæki sem bjóða eftisóttar lausnir en hnattvæðing, aukin alþjóðleg samkeppni og tilhneiging til aukinnar verndarstefnu í viðskiptum gera auknar kröfur til þess að norræn fyrirtæki endurnýi sig hraðar, auki nýsköpun og skilvirkni og hafi jafnframt aðgang að alþjóðlegum mörkuðum,“ segir Monica Mæland, atvinnuvegamálaráðherra Noregs og formaður ráðherranefndarinnar um atvinnustefnu á árinu 2017.

„Aukin alþjóðleg samkeppni og tilhneiging til aukinnar verndarstefnu í viðskiptum gera auknar kröfur um að norræn fyrirtæki endurnýi sig hraðar, auki nýsköpun og skilvirkni og hafi jafnframt aðgang að alþjóðlegum mörkuðum,“ sagði Monica Mæland.

 

Stafræn tækniþróun mikilvæg

Stafræn tækniþróun fær mikið vægi í samstarfsáætluninni. Áætlunin byggir að verulegu leyti á norræn-balttnesku yfirlýsingunni um stafræna tækniþróun sem samþykkt var í apríl 2017. Í samtarfsáætluninni kemur fram að hið norræna samstarf eigi að stuðla að því að fleiri fyrirtæki þróist á stafrænt, sjálftæknivæðist eða nýti stafrænar lausnir til við að þróa viðskiptalíkön sín.

Markmið samstarfsáætlunarinnar er einnig að styrkja stöðu norrænna fyrirtækja alþjóðlega og samvinnu þeirra þannig að þau fái betri aðgang að nýjum og aðlaðandi mörkuðum, meðal annars gegnum miðstöðvar eins og Innovation House bæði í Silicon Valley og New York. Áætlunin á einnig að stuðla að því að viðhalda og þróa Norðurlöndin sem miðstöð nýsköpunar á heimsvísu.

Þar að auki er í áætluninni lögð áhersla á að norrænt samstarf vísi veginn í þá átt að einfalda leiðir fyrirtækja til að nálgast áhættufjármagn ásamt því að fjölga fjárfestiungum yfir landamæri á Norðurlöndum.