Þingforsetar halda upp á afmæli elstu stjórnarskrár Norðurlanda

15.05.14 | Fréttir
Olemic Thommessen
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Þingforsetar Norðurlanda voru heiðursgestir þegar haldið var upp á 200 ára afmæli norsku stjórnarskrárinnar (Grunnloven) í Stórþinginu 15. maí 2014. Fulltrúar allra sviða ríkisvaldsins — Stórþingsins, ríkisstjórnarinnar og Hæstaréttar — voru samtímis til staðar í stórþingssalnum. Einnig var fulltrúi frá konungsfjölskyldunni.

Þingforsetarnir sem samankomnir voru í Ósló til að halda upp afmæli elstu stjórnarskrár Norðurlanda voru þeir Per Westerberg frá sænska þinginu (Riksdagen), Mogens Lykketoft frá danska þinginu (Folketinget), Einar K. Guðfinnson, forseti Alþingis, og Eero Heinäluoma frá finnska þinginu (Eduskunta).

„15. maí er mikilvægur dagur fyrir Stórþingið og fyrir stjórnarskrána. Á 200 árum höfum við gert Noreg að samfélagi sem við erum mjög stolt af og sem við viljum skila til komandi kynslóða. Ef okkur á að lánast það þurfum við að takast á við þau lýðræðislegu úrlausnarefni sem við stöndum frammi fyrir um þessar mundir. Viðfangsefni á borð við mörk opinberrar umræðu, stafræna þróun og fjölmenningu eru mikilvæg fyrir áframhaldi þróun lýðræðisins,“ sagði Olemic Thommessen, forseti norska Stórþingsins, sem var gestgjafi við afmælishátíðina.

Meira en 200 manns í þjóðbúningi buðu gestina velkomna til Stórþingsins og eftir það voru almenn hátíðarhöld. Á dagskránni voru síðan ýmsir menningarviðburðir sem vörpuðu ljósi á þróun lýðræðisins.

Nánari upplýsingar um hátíðarhöldin og 200 ára afmæli norsku stjórnarskrárinnar má nálgast á vef Stórþingsins: www.stortinget.no