Færni til framtíðar, lýðræði og breytingar á viðbúnaði
Áhersla á menningararf og viðbúnað
Í heimsókn á Skagens Museum sá nefndin með eigin augum hvernig safn vinnur að öryggi, viðbúnaði og verndun menningararfsins. Rætt var um hvernig söfn og menningarumhverfi þurfa að viðhalda stöðugleika á tímum stafrænnar þróunar þar sem ástandið í heiminum er óstöðugt og fleiri krísur steðja að.
Þá kom skýrt fram að menningararfur snýst ekki aðeins um varðveislu á gömlu umhverfi og safnkost heldur er hann mikilvægur til að efla norrænar frásagnir, tungumála og skapandi starfs í samtímanum.
Lýðræði, þátttaka og heimildarýni
Á fundinum sjálfum var rætt um lýðræðisfærni, þátttöku og gagnrýna hugsun barna og ungmenna. Bent var hvernig menntun eflir lýðræðisleg gildi, heimildarýni og samfélagsþátttöku.
Börn og ungmenni þurfa verkfæri til að leggja gagnrýnið mat á upplýsingar og heimildir og átta sig á mikilvægi blaðamennsku. Ef það mistekst er hætt við að skautun í samfélaginu fari vaxandi. Þá er mikilvægt að Norðurlönd hafi viðmið um hvernig tekið skuli á hraðri þróun gervigreindar.
Bókasöfn, fjölmiðlar og norrænar kvikmyndir
Mikkel Christoffersen frá Danmarks Biblioteksforening var gestur á fundinum og greindi frá tækifærum og áskorunum stafrænna bókasafna og breyttu samfélagslegu hlutverki bókasafna.
Liselott Forsman, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins, var einnig gestur fundarins og greindi frá því hvernig unnið er að því að auka gæði, dreifingu og alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna kvikmynda, framhaldsþátta og heimildamynda. Hún benti einnig á áskoranir í tengslum við skattaívilnanir fyrir kvikmyndaframleiðslu og það sem ólíkt er með löndunum hvað það varðar.
Færniþörf fyrir vinnumarkað framtíðarinnar
Seinni dagur fundarins var tileinkaður færniþörf til framtíðar. Í Frederikshavn heimsótti nefndin MARTEC sem er mennta- og námskeiðssetur með áherslu á siglingar, tækni og græn umskipti. Heimsóknin veitti innsýn í hvernig menntageirinn vinnur að því að mæta breyttum þörfum á vinnumarkaði.
Þá heimsótti nefndin Tolne Efterskole, heimavistarskóla fyrir ungt fólk sem þarf sérstakan stuðning við nám og þroska. Á fundi með nemendum og starfsfólki fengu þingmenn innsýn í hvernig einstaklingsmiðuð kennsla og félagsleg samheldni getur byggt upp sterka sjálfsmynd og bætt forsendur til þess að ná settum markmiðum í námi.
Sameiginlegur skilningur á Norðurlöndum
Reynslan frá Skagen sýnir hvernig fjárfesting í menningararfi, menntun og færniþróun eflir samheldni, samkeppnishæfni og viðnámsþrótt Norðurlanda á tímum hraðfara samfélagsbreytinga.
Nefndin byggir á niðurstöðum sumarfundarins í áframhaldandi vinnu að því að þróa sameiginlegar norrænar lausnir á áskorunum framtíðar.